Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 436 — 346. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um kvótasetningu á makríl.
Frá Birni Val Gíslasyni.
1. Hefur ráðherra í hyggju að kvótasetja veiðiheimildir í makríl á skip (fastan kvóta)?
2. Hefur ráðherra leitað ráðgjafar aðila utan Stjórnarráðsins við úthlutun og útfærslu á kvótasetningunni og ef svo er, hvaða aðilar eru það og hvaða gögn hafa verið lögð fram af þeirra hálfu?
3. Hverjar telur ráðherra helstu afleiðingar kvótasetningar á makríl?
4. Hvaða gögn liggja fyrir af hálfu ráðuneytisins til grundvallar kvótasetningu á makríl?
Skriflegt svar óskast.