Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 440 — 197. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Birgi Ármannssyni
um ráðningar starfsmanna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, voru ráðnir til starfa í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu (áður umhverfisráðuneytinu) frá 1. febrúar 2009 til 31. maí 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir voru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.
Ráðnir hafa verið til starfa þrír aðstoðarmenn ráðherra umhverfis- og auðlindamála og auk þess einn aðstoðarmaður tímabundið vegna afleysinga á tímabilinu 1. febrúar 2009 til 31. maí 2013:
– Hafdís Gísladóttir var ráðin sem aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur frá 25. maí 2009 til 15. september 2011.
– Andrés Ingi Jónsson var ráðinn sem aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur frá 1. september 2011 til 23. maí 2013.
– Aðalsteinn Hákonarson var ráðinn tímabundið sem aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur í fæðingarorlofi Andrésar Inga Jónssonar frá 17. desember 2012 til 14. janúar 2013.
– Ingveldur Sæmundsdóttir var ráðin sem aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar frá 29. maí 2013 og er enn að störfum.
Tvær tímabundnar ráðningar starfsmanna í sérverkefni voru án auglýsingar á umræddu tímabili:
– Guðríður Þorvarðardóttir var ráðin tímabundið til að sinna friðlýsingum og náttúruvernd frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2011.
– Halldóra Traustadóttir var ráðin tímabundið í hlutastarf til að vinna að verkefnum tengdum kynjaðri hagstjórn frá 1. ágúst 2012 til 14. mars 2013.