Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 506 — 377. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um aðgang að upplýsingum
við vinnu við fjárlaga- og tekjufrumvörp.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hvaða upplýsingar, á hvaða formi og með hvaða forritum og tölvukerfum, eru notaðar í ráðuneytinu við vinnu við fjárlaga- og tekjufrumvörp?
2. Hvað af þessum upplýsingum, forritum og kerfum eru aðgengileg fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd þegar þær sinna lögbundnu hlutverki sínu skv. 13. gr. og 4. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis og fjalla um frumvörpin?
3. Hafa þingmenn sama aðgang að upplýsingum, forritum og kerfum svo þeim sé fært að nýta rétt sinn skv. 46. gr. laga um þingsköp Alþingis og bera fram breytingartillögur við frumvörpin?
Skriflegt svar óskast.