Ferill 152. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 645  —  152. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá
Oddnýju G. Harðardóttur um barnabætur.


     1.      Hvað námu barnabætur að meðaltali hárri fjárhæð á hvert heimili einstaklings með tvö börn og annað yngra en sjö ára, greint eftir mánaðarlaunum á eftirfarandi tekjubilum: undir 200 þús. kr., 200–300 þús. kr., 300–400 þús. kr., 400–500 þús. kr., 500–600 þús. kr. og yfir 600 þús. kr. fyrir árin 2013, 2014 og 2015? Hverjar hefðu bæturnar orðið fyrir sömu tekjubil hefði breytingartillaga skv. þskj. 1135 í 484. máli 143. löggjafarþings verið samþykkt og hverjar eru áætlaðar bætur 2015 verði framkomnar tillögur ríkisstjórnar samþykktar, sbr. 2. mál yfirstandandi þings?
    Barnabætur eru tekjutengdar og við útreikning þeirra er tekið tillit til tekna samkvæmt skattframtali og eru fjármagnstekjur þar meðtaldar. Rétt er að hafa í huga að barnabætur eru skattfrjálsar tekjur.
    Eftirfarandi tafla 1 sýnir meðalbarnabætur hjá einstæðu foreldri með tvö börn og annað yngra en sjö ára, greint eftir tilgreindum tekjubilum. Miðað er við álagningarárin 2013 og 2014. Fjárhæðir barnabóta og skerðingarmörk tekna voru óbreytt milli 2013 og 2014. Eins og fram kemur í töflu 1 fær einstætt foreldri með tvö börn, annað yngra en 7 ára, og með tekjur undir 200 þús. kr. á mánuði sömu fjárhæð barnabóta 2013 og 2014, eða 665.375 kr. á ári, sem svarar til 55.448 kr. á mánuði. Fari tekjur hins vegar umfram þau mörk skerðast almennar barnabætur um 5% fyrir tvö börn, en sérstakar barnabætur með börnum yngri en sjö ár skerðast um 3% fyrir hvert barn.

Tafla 1. Einstætt foreldri með tvö börn og annað yngra en 7 ára.

Álagningarár 2013, árstölur í kr. 2014, árstölur í kr.
Tekjubil Fjöldi Meðalbarnabætur Fjöldi Meðalbarnabætur
< 200 þús. kr. 366 665.375 342 665.375
200–300 þús. kr. 294 627.748 318 624.614
301–400 þús. kr. 147 522.169 178 524.025
401–500 þús. kr. 82 432.484 108 431.842
501–600 þús. kr. 29 363.738 33 360.343
> 600 þús. kr. 40 262.004 52 238.724

    Ef nefnd breytingartillaga á þingskjali 1135 í 484. máli 143. löggjafarþings hefði verið samþykkt hefðu greiðslur barnabóta samkvæmt reiknilíkani ráðuneytisins orðið þær sem fram koma í töflu 2 við álagningu 2014.

Tafla 2. Einstætt foreldri með tvö börn og annað yngra en 7 ára.

Álagningarár 2014, árstölur í kr.
Tekjubil Fjöldi Meðalbarnabætur
< 200 þús. kr. 342 713.643
200–300 þús. kr. 318 672.882
301–400 þús. kr. 178 572.293
401–500 þús. kr. 108 479.523
501–600 þús. kr. 33 392.298
> 600 þús. kr. 52 266.992

    Í töflu 3 eru tölur fyrir áætlaðar meðalbarnabætur fyrir árið 2015 miðað við þær breytingartillögur sem nú eru til meðferðar á Alþingi, þar sem lagt er til að fjárhæðir barnabóta verði hækkaðar um 13% þegar búið er að taka tillit til 2,5% verðlagsuppfærslu. Að auki er lagt til að skerðingarhlutföll hækki um 1%. Niðurstaðan samkvæmt reiknilíkani ráðuneytisins er sú að barnabætur einstæðs foreldris með tvö börn, annað yngra en 7 ára, sem er með tekjur undir 200 þús. kr. á mánuði ættu að nema rúmlega 770 þús. kr. á ári, eða rúmlega 64 þús. kr. á mánuði verði frumvarpið samþykkt óbreytt.

Tafla 3. Einstætt foreldri með tvö börn og annað yngra en 7 ára.

Álagningarár 2015, árstölur í kr.
Tekjubil Fjöldi Meðalbarnabætur
< 200 þús. kr. 332 770.671
200–300 þús. kr. 322 718.377
301–400 þús. kr. 174 593.422
401–500 þús. kr. 107 484.139
501–600 þús. kr. 38 413.660
> 600 þús. kr. 58 260.699


     2.      Hvað námu barnabætur að meðaltali hárri fjárhæð á hvert heimili hjóna (sambýlisfólks) með tvö börn og annað yngra en sjö ára, greint eftir sam­eigin­legum mánaðarlaunum hjóna á eftirfarandi tekjubilum: undir 400 þús. kr., 400–500 þús. kr., 500–600 þús. kr., 600–700 þús. kr., 700–800 þús. kr. og yfir 800 þús. kr. fyrir árin 2013, 2014 og 2015? Hverjar hefðu bæturnar orðið fyrir sömu tekjubil hefði breytingartillaga skv. þskj. 1135 í 484. máli 143. löggjafarþings verið samþykkt og hverjar eru áætlaðar bætur 2015 verði framkomnar tillögur ríkisstjórnar samþykktar, sbr. 2. mál yfirstandandi þings?
     3.      Hversu mörg eru heimili einstaklinga annars vegar og hjóna eða sambýlisfólks hins vegar, skipt eftir tekjubilum og öðrum forsendum í 1. og 2. tölul.?

    Í töflu 4 koma fram meðalbarnabætur hjá hjónum með tvö börn og annað yngra en sjö ára, greint eftir tilgreindum tekjubilum. Hér er einnig miðað við álagningarár 2013 og 2014. Fjárhæðir barnabóta og skerðingarmörk tekna voru óbreyttar milli 2013 og 2014. Hjón með tvö börn og annað yngra en 7 ára og með tekjur undir 400 þús. kr. á mánuði fær sömu fjárhæð barnabóta 2013 og 2014 eða 467 þús. kr. á ári eða tæp 39 þús. kr. á mánuði. Fari tekjur hins vegar umfram þau mörk skerðast almennar barnabætur um 5% fyrir tvö börn, en sérstakar barnabætur með börnum yngri en sjö ár skerðast um 3% fyrir hvert barn.



Tafla 4. Hjón/sambýlisfólk með tvö börn og annað yngra en 7 ára.

Álagningarár 2013, árstölur í kr.     2014, árstölur í kr.
Tekjubil Fjöldi Meðalbarnabætur Fjöldi Meðalbarnabætur
< 400 þús. kr. 506 467.019 411 467.019
400–500 þús. kr. 314 419.228 289 416.913
501–600 þús. kr. 429 319.479 344 323.944
601–700 þús. kr. 434 229.970 412 230.064
701–800 þús. kr. 312 166.585 293 166.664
> 800 þús. kr. 800 83.194 873 81.122

    Ef umrædd breytingartillaga á 143. löggjafarþingi hefði verið samþykkt hefðu greiðslur barnabóta samkvæmt reiknilíkani ráðuneytisins orðið þær sem fram koma í töflu 5 við álagningu 2014.

Tafla 5. Hjón/sambýlisfólk með tvö börn og annað yngra en 7 ára.

Álagningarár 2014, árstölur í kr.
Tekjubil Fjöldi Meðalbarnabætur
< 400 þús. kr. 411 505.370
400–500 þús. kr. 289 455.264
501–600 þús. kr. 344 362.295
601–700 þús. kr. 412 267.758
701–800 þús. kr. 293 187.843
> 800 þús. kr. 873 99.473

    Í töflu 6 eru tölur fyrir áætlaðar meðalbarnabætur fyrir árið 2015 miðað við þær breytingartillögur sem nú eru til meðferðar á Alþingi, þar sem lagt er til að fjárhæðir barnabóta verði hækkaðar um 13% þegar búið er að taka tillit til 2,5% verðlagsuppfærslu. Að auki er lagt til að skerðingarhlutföll hækki um 1%. Niðurstaðan samkvæmt reiknilíkani ráðuneytisins er sú að meðalbarnabætur hjóna með tvö börn, annað yngra en 7 ára, sem eru með tekjur undir 400 þús. kr. á mánuði nema tæplega 541 þús. kr. á ári eða rúmlega 45 þús. kr. á mánuði.

Tafla 6. Hjón/sambýlisfólk með tvö börn og annað yngra en 7 ára.

Álagningarár 2015, árstölur í kr.
Tekjubil Fjöldi Meðalbarnabætur
< 400 þús. kr. 395 540.925
400–500 þús. kr. 275 479.201
501–600 þús. kr. 345 360.271
601–700 þús. kr. 405 250.827
701–800 þús. kr. 280 184.603
> 800 þús. kr. 922 76.695


    Til fróðleiks er eftirfarandi yfirlitsmynd yfir fjárhæðir barnabóta fyrir árin 2007–2015 á verðlagi hvers árs og verðlagi í september 2014.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.