Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 791  —  195. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Birgi Ármannssyni
um ráðningar starfsmanna mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, voru ráðnir til starfa í mennta- og menningarmálaráðuneytinu (áður menntamálaráðuneytinu) frá 1. febrúar 2009 til 31. maí 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir voru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.

    Á tímabilinu frá 1. febrúar 2009 til 31. maí 2013 voru eftirfarandi starfsmenn ráðnir tímabundið til starfa í mennta- og menningarmálaráðuneytinu án þess að störfin væru auglýst:

    –        Sigtryggur Magnason. Aðstoðarmaður ráðherra á tímabilinu 10. febrúar 2009 til 31. janúar 2010.
    –        Elías Jón Guðjónsson. Aðstoðarmaður ráðherra á tímabilinu 1. febrúar 2010 til 24. maí 2013.
    –        Berglind Rós Magnúsdóttir. Tímabundin ráðning sem ráðgjafi ráðherra í menntamálum. Fullt starf frá 1. júní 2009 til 30. júní 2011.
    –        Guðni Tómasson. Tímabundin ráðning sem ráðgjafi ráðherra í menningarmálum. Fullt starf frá 1. febrúar 2012 til 24. maí 2013.
    –        Hildur Skarphéðinsdóttir. Tímabundin ráðning sem sérfræðingur á skrifstofu menntamála. Fullt starf frá 1. febrúar 2009 til 31. maí 2009.
    –        Sigurður R. Guðjónsson. Tímabundin ráðning sem sérfræðingur á skrifstofum mats- og greiningarsviðs. Hálft starf frá 3. nóvember 2010 til 12. desember 2010.
    –        Brynja Björk Birgisdóttir. Tímabundin ráðning við úttekt á stöðu og þróun fornleifarannsókna á Íslandi. Fullt starf frá 19. mars 2012 til 21. september 2012.
    –        Birgir Jóhannsson. Tímabundin ráðning á skrifstofu mats- og greiningarsviðs við úttekt á rammaáætlun Evrópusambandsins. Hálft starf frá 20. júní 2011 til 31. desember 2011.
    –        Þórarinn V. Sólmundarson. Ráðinn tímabundið í vistaskiptum frá Byggðastofnun sem sérfræðingur á skrifstofu vísinda og háskóla. Fullt starf frá 1. apríl 2011 til 31. mars 2013.
    –        Kristrún Birgisdóttir. Tímabundin ráðning sérfræðings á skrifstofu menntamála við innritun nema í framhaldsskóla. Fullt starf frá 1. apríl 2011 til 30. september 2012.
    –        Inga Guðrún Kristjánsdóttir. Tímabundin ráðning sérfræðings á skrifstofu menntamála við innritun nema í framhaldsskóla. Hálft starf frá 24. apríl 2011 til 31. desember 2011. Fullt starf frá 1. janúar 2012 til 15. júlí 2012.
    –        Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir. Tímabundin ráðning verkefnastjóra við undirbúning og framkvæmd norrænnar formennsku Íslands árið 2014. Hálft starf frá 17. maí 2013 til 31. desember 2013.
    –        Magnús Lyngdal Magnússon. Ráðinn í vistaskiptum frá Rannís á skrifstofu vísinda og háskóla. Fullt starf frá 13. ágúst 2012 til 30. júní 2013.
    –        Tryggvi Björgvinsson. Tímabundin ráðning sem sérfræðingur í upplýsingatækni á skrifstofu menntamála. Fullt starf frá 1. janúar 2011 til 14. júlí 2012.