Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 837  —  485. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um afnám verðtryggingar á neytendalánum.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hvað líður áformum og aðgerðum um afnám verðtryggingar á neytendalánum?
     2.      Hvenær er áætlað að verðtrygging á neytendalánum verði afnumin að fullu?


Skriflegt svar óskast.