Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 846 — 493. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um launatengd gjöld.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Hver hefur heildarupphæð tryggingagjalds verið og hlutdeild hvers eftirtalinna þátta gjaldsins um sig í prósentustigum og fjárhæðum á verðlagi núgildandi fjárlaga ár hvert frá og með 2000 til og með 2015:
a. atvinnutryggingagjalds,
b. greiðslna í Ábyrgðasjóð launa,
c. greiðslna í Fæðingarorlofssjóð,
d. almenns tryggingagjalds,
e. markaðsgjalds?
2. Hver var sjóðsstaða Atvinnuleysistryggingasjóðs, Ábyrgðasjóðs launa og Fæðingarorlofssjóðs í árslok hvers árs á framangreindu tímabili á verðlagi núgildandi fjárlaga og hver er áætluð staða þessara sjóða í lok þessa árs?
Skriflegt svar óskast.