Ferill 534. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 916 — 534. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um hafrannsóknir.
Frá Oddnýju G. Harðardóttur.
1. Hvaða útgerð eða útgerðir önnuðust svokallað haustrall 2014?
2. Hvað má áætla að það hefði kostað Hafrannsóknastofnun að annast rallið á eigin skipum?
3. Var gerður samningur um verkefnið með skilgreindu umfangi þjónustu og um greiðslur úr ríkissjóði, sbr. 5. mgr. 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins, og ef svo var, hversu háar voru þær greiðslur?
4. Var greitt með öðru en íslenskum krónum og ef svo er:
a. á hvaða formi voru greiðslurnar og hvert er áætlað virði þeirra í íslenskum krónum,
b. hvernig var staðið að mati á kostnaði þjónustunnar við gerð verksamninganna annars vegar og hins vegar á virði þess sem notað var til greiðslu fyrir þjónustuna,
c. telur ráðherra það samrýmast 2. mgr. 5. gr. laga um Seðlabanka Íslands ef ráðuneyti eða stofnanir, sem undir það heyra, greiða fyrir vörur eða veitta þjónustu með öðru en lögeyri? Óskað er eftir rökstuðningi.
5. Var heimild fyrir þessum útgjöldum í fjárlögum eða fjáraukalögum? Ef ekki, telur ráðherra útgjöldin standast ákvæði 41. gr. stjórnarskrárinnar þar sem kveðið er á um að ekkert gjald megi greiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum? Óskað er eftir rökstuðningi.
Skriflegt svar óskast.