Ferill 536. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 919 — 536. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um launaþróun starfsmanna ríkisins.
Frá Sigurði Erni Ágústssyni.
1. Hver hefur verið þróun þeirra launa ríkisstarfsmanna sem kjararáð ákveður í samræmi við 1. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2006, um kjararáð, frá því lögin tóku gildi?
2. Hver hefur launaþróun annarra starfsmanna ríkisins verið á sama tíma, flokkað eftir stéttarfélögum?
Skriflegt svar óskast.