Ferill 109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 109  —  109. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um eignir og tekjur landsmanna.


Frá Árna Páli Árnasyni.


1.      Hvert er eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest eiga árið 2014 og hvert er hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna árið 2014? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2013?
2.      Hverjar eru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest eiga árið 2014 og hvert er hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna árið 2014? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2013?
3.      Hverjar eru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2014, með og án fjármagnstekna, og hvert er hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna árið 2014? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2013?
4.      Hvað eiga tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2014 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna árið 2014? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2013?


Skriflegt svar óskast.