Ferill 724. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.
Þingskjal 1167 — 724. mál.
Leiðréttur texti.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um skjöl um þingrof o.fl.
Frá Kristjáni L. Möller.
Eru skjöl um þingrof og nýjar kosningar sem undirbúin voru í aðdraganda fundar með forseta Íslands 5. apríl sl. sem forseti hefur greint frá opinberlega eða önnur gögn tengd sama fundi skráð í málaskrá ráðuneytisins? Eru gögnin aðgengileg og þá hvar?
Skriflegt svar óskast.