Ferill 562. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1170 — 562. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um sjúkraflug.
1. Hver hefur fjöldi sjúkrafluga og kostnaður við þau verið frá árinu 2008? Svar óskast sundurliðað eftir árum, búsetu sjúklinga og til hvaða sveitarfélags var flogið.
Í töflunni hér á eftir er fjöldi sjúkrafluga á árunum 2008–2015 flokkaður eftir landshlutum. Í svari við 3. tölulið fyrirspurnarinnar kemur fram nánari greining á því frá hvaða flugvöllum var flogið. Alla jafna er flogið frá þeim flugvelli sem næstur er þeirri sjúkrastofnun sem óskað hefur eftir flutningi og er oftast sú stofnun sem sjúklingur leitar almennt til.
| Fjöldi sjúkrafluga með flugvélum innan lands | ||||||||
| Sjúkraflug frá | 2008 | 2009 | 2010* | 2011* | 2012* | 2013* | 2014* | 2015* |
| Suðurnesjum | 0 | 0 | 0 | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 |
| Reykjavík | 80 | 56 | 70 | 73 | 64 | 71 | 84 | 105 |
| Vesturlandi | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Vestfjörðum | 74 | 60 | 51 | 48 | 59 | 70 | 49 | 45 |
| Norðurlandi vestra | 21 | 18 | 9 | 7 | 12 | 7 | 5 | 7 |
| Norðurlandi eystra | 160 | 134 | 142 | 137 | 123 | 127 | 131 | 164 |
| Austurlandi | 179 | 121 | 130 | 124 | 133 | 142 | 163 | 193 |
| Vestmannaeyjum | 68 | 75 | 46 | 68 | 61 | 50 | 106 | 85 |
| Alls: | 582 | 464 | 448 | 458 | 452 | 467 | 539 | 599 |
| * 2010 voru 6 flug frá VE með þyrlu Landhelgisgæslunnar greidd af SÍ. | ||||||||
| * 2011 voru 4 flug frá VE með þyrlu Landhelgisgæslunnar greidd af SÍ. | ||||||||
| * 2012 voru 3 flug frá VE með þyrlu Landhelgisgæslunnar greidd af SÍ. | ||||||||
| * 2013 var 1 flug frá VE með þyrlu Landhelgisgæslunnar greitt af SÍ. | ||||||||
| * 2014 voru 5 flug með þyrlu Landhelgisgæslunnar greidd af SÍ. | ||||||||
| * 2015 voru 10 sjúkraflug með þyrlu Landhelgisgæslunnar greidd af SÍ. | ||||||||
Í eftirfarandi töflu er yfirlit yfir kostnað við sjúkraflug á þeim árum sem spurt var um.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Til frekari skýringa má benda á að Mýflug tók yfir flug til Vestmannaeyja árið 2010.
Árið 2013 var gerður nýr samningur við Mýflug í kjölfar útboðs. Isavia byrjaði að taka gjald fyrir opnun á flugvöllum árið 2013, svokallað opnunargjald.
2. Hvaða læknisfræðilegar ástæður hafa legið að baki flutningi með sjúkraflugi frá árinu 2008? Svar óskast sundurliðað á sama hátt og í fyrri lið.
Í eftirfarandi töflu koma fram þær læknisfræðilegu ástæður sem lágu að baki beiðna um sjúkraflug á árunum 2012–2015. Vegna breytinga á skráningu þyrfti að leggja mikla vinnu í að setja fram sambærilegar upplýsingar og fram koma í töflunni fyrir árin 2008–2011.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hvar eru sjúkraflugvélar staðsettar, hver er viðbragðstími þeirra og hve langur tími líður frá því að óskað er eftir flugi og þar til sjúklingur er kominn á áfangastað? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Miðstöð sjúkraflugs er á Akureyri.
Viðbragðstími er skilgreindur sem tími frá því að staðfest beiðni um sjúkraflug berst þar til flugvél er tilbúin til flugtaks með allan nauðsynlegan búnað. Hámarksviðbragðstími í hverju útkalli er skilgreindur eftir tegund útkalls.
Útkallstegundir eru þessar:
– Forgangur F-1, bráð lífsógn. Hámarksviðbragðstími er 35 mínútur.
– Forgangur F-2, mögulega bráð lífsógn. Hámarksviðbragðstími er 35 mínútur.
– Forgangur F-3, þarfnast ekki tafarlausra viðbragða. Viðbragðstími allt að sex klukkustundir.
– Forgangur F-4, flutningur milli sjúkrastofnana. Einungis er gripið til sjúkraflugs F-4 ef ekki er unnt að flytja sjúkling með áætlunarflugi. Viðbragðstími er lengri en sex klst. og samið um hvenær flutningur fer fram.
Í þeim tilvikum þar sem ein flugvél er í sjúkraflugi og annað útkall samkvæmt F-1 eða F-2 berst skal verksali, þ.e. Mýflug hf., sjá til þess að viðbragðstími verði ekki lengri en 105 mínútur.
Í töflum hér á eftir má sjá meðalviðbragðstíma, annars vegar eftir forgangi F-1 og F-2 og hins vegar eftir forgangi F-3. F-4 útköllum er sinnt eftir samkomulagi og því oft farið í þau daginn eftir að beiðni berst og viðbragstími því ekki mældur.
Í töflunum má einnig sjá meðaltíma frá því að beiðni barst og farið var í loftið, þar til lent var til að ná í sjúkling og sjúklingi var komið á áfangastað, oftast Reykjavíkurflugvöll. Sjá má frá hvaða flugvelli var flogið (feitletrað) og til hvaða flugvallar. Oftast var flogið til Reykjavíkur en einnig voru nokkur flug til Akureyrar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hefur farið fram mat á kostnaði við sjúkraflug til Reykjavíkur samanborið við aukna þjónustu í byggð og ef svo er, hvernig lítur sá samanburður út?
Slíkt mat hefur ekki farið fram á vegum ráðuneytisins. Svörin hér að framan geta þó gefið nokkrar vísbendingar um slíkan samanburð. Ef sjúkraflug frá Vestmannaeyjum árið 2015 er t.d. skoðað sérstaklega má gera ráð fyrir að flytja þyrfti sjúklinga með hjarta-, heila- og æðasjúkdóma og vegna áverka á hrygg, mjöðmum, brjóstholi og höfði með sjúkraflugi á sérhæft sjúkrahús. Óvíst er hversu stórt hlutfall sjúklinga, sem fluttir voru með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum vegna kviðverkja, sepsis/sýkinga, útlimaáverka og annarra áverka og vegna meðgöngu/fæðingar, hefði verið hægt að meðhöndla í Vestmannaeyjum með hærra þjónustustigi þar, svo sem sólarhringsopnun skurðstofu.
Árið 2015 voru samtals 90 sjúkraflug frá Vestmannaeyjum, 85 með Mýflugi og fimm á vegum Landhelgisgæslunnar. Heildarkostnaður vegna þessara sjúkrafluga var 26.253.353 kr. án kostnaðar vegna læknis í sjúkraflugi. Að viðbættum kostnaði vegna læknis má áætla að kostnaður vegna alls sjúkraflugs frá Vestmannaeyjum árið 2015 hafi verið tæpar 30 millj. kr. Áætlaður kostnaður við sólarhringsopnun skurðstofu í Vestmannaeyjum, þ.e. lágmarkslaunakostnaður, annar rekstrarkostnaður og stofnkostnaður, á verðlagi ársins 2016 er hins vegar um 170 millj. kr. samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.