Ferill 701. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1223 — 701. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um flutning verkefna til sýslumannsembætta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvernig miðar flutningi verkefna frá ráðuneytinu til sýslumannsembætta samkvæmt aðgerðaáætlun um flutning verkefna til embætta sýslumanna sem gerð var samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 50/2014?
2. Telur ráðherra unnt að flytja önnur verkefni úr ráðuneytinu til sýslumannsembætta en þau sem tiltekin eru í fyrrgreindri aðgerðaáætlun?
3. Hvaða aðferðum er beitt við ákvörðun um að flytja verkefni til sýslumannsembættis og hvað kemur einkum í veg fyrir flutning?
Í samræmi við tilgreint ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 50/2014 var á vegum forsætisráðuneytis og innanríkisráðuneytis unnin aðgerðaáætlun. Skýrsla um aðgerðaáætlunina var birt í janúar 2015. Í samræmi við niðurstöður var ekki talið fýsilegt að flytja verkefni sem heyra undir forsætisráðuneytið til sýslumanna
Af hálfu ráðherra hefur ekki farið fram endurmat á niðurstöðum skýrslunnar um það hvaða verkefni unnt væri að flytja til sýslumannsembætta.
Í tengslum við gerð aðgerðaáætlunarinnar var farið yfir helstu verkefni ráðuneytisins, eðli þeirra og umfang og metið hvort betur færi á að þau yrðu vistuð hjá sýslumönnum en í ráðuneytinu. Einnig var fyrirspurn send til stofnana ráðuneytisins. Eftir þessa skoðun voru fjögur verkefni skoðuð sérstaklega en á þeim tímapunkti sem könnunin var gerð þótti það ekki fýsilegt, m.a. með tilliti til stöðu verkefnanna og kostnaðar.