Ferill 691. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1237 — 691. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um tillögur að breytingum á byggingarreglugerð.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hefur farið fram kostnaðarmat á áhrifum tillagna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins að breytingum á byggingarreglugerð nr. 112/2012 sem fela í sér að dregið verði úr hönnunarkröfum húsnæðis til að tryggja aðgengi allra, og ef svo er, hvað felur það kostnaðarmat í sér?
2. Hvaða sjónarmið telur ráðherra að réttlætt geti tillögur um að útiloka hluta landsmanna frá aðgengi að íbúðarhúsnæði og hvernig telur ráðherra að þessi ákvörðun samræmist almennum mannréttinda- og jafnréttissjónarmiðum og ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sérstaklega?
3. Telur ráðherra að breytingartillögur ráðuneytisins varðandi byggingarreglugerð samræmist þeirri stefnu að aldraðir – sem sumir stríða við hreyfihömlun – búi sem lengst í heimahúsum?
4. Telur ráðherra að tillögur að breytingum samræmist gildandi lögum, þar á meðal stjórnarskrá, og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands um réttindi fatlaðs fólks og hvernig rökstyður ráðherra álit sitt?
Ekki hefur farið fram kostnaðarmat á áhrifum þessara tillagna þar sem ákveðið hefur verið að gera ekki breytingar á þeim ákvæðum reglugerðarinnar er varða aðgengi. Kröfur um algilda hönnun eru óbreyttar í byggingarreglugerðinni.