Ferill 556. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1244 — 556. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur um embættismenn.
1. Hver er heildarfjöldi embættismanna sem starfa hjá ráðuneytinu og stofnunum þess?
Í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og undirstofnunum þess starfa samtals 53 embættismenn.
2. Skipan hve margra þeirra rennur út á þessu ári og skipan hve margra á ári hverju 2017–2020?
Árið 2016 lýkur skipan sjö embættismanna, tólf árið 2017, sjö árið 2018, níu árið 2019 og þrettán árið 2020.
3. Hve margir embættismenn eru á þessu ári 60–64 ára, 65–66 ára og 67–69 ára og hve margir verða 70 ára á næsta ári?
Aldur embættismanna á bilinu 60–70 ára á árinu 2016 skiptist þannig: Fjórtán eru 60–64 ára, tveir 65–66 ára, tveir 67–69 ára og einn er 70 ára.
4. Hve margir embættismenn starfa sem skrifstofustjórar innan ráðuneytisins án mannaforráða?
Enginn skrifstofustjóri starfar innan ráðuneytisins án mannaforráða.