Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 125 — 125. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um stóriðju og orkuverð.
Frá Vigdísi Hauksdóttur.
Hefur verið lagt mat á eftirfarandi:
a. stöðu stóriðju á Íslandi með tilliti til núverandi stöðu hennar, nýlegra breytinga á ytra og innra umhverfi og framtíðarhorfa,
b. kröfu Landsvirkjunar um hækkun orkuverðs til stóriðju samfara lækkandi álverði,
c. alþjóðlega stöðu álmarkaða, þróun álverðs, áhrif af sveiflum í Kína og þróun orkuverðs hérlendis og erlendis,
d. þjóðhagsleg og svæðisbundin áhrif hér á landi kæmi til þess að einu eða fleiri stóriðjuverum yrði lokað,
e. afleiðingar þess ef kjarasamningar nást ekki í álverinu í Straumsvík,
f. afleiðingar þess ef ekki næst að endurnýja samninga um orkuverð við stóriðjuna á Grundartanga (Elkem og Norðurál),
g. afleiðingar þess fyrir Landsvirkjun ef spár um nýja og ódýrari orkukosti á heimsvísu ganga eftir í náinni framtíð?
Skriflegt svar óskast.