Ferill 523. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1272 — 523. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um ráðgjafarnefnd og fagráð Menntamálastofnunar.
1. Hverjir skipa ráðgjafarnefnd Menntamálastofnunar og hversu oft hefur nefndin fundað?
Samkvæmt lögum um Menntamálastofnun nr. 91/2015 á nefndin að vera skipuð sjö aðilum til fjögurra ára í senn. Tveir nefndarmanna skulu skipaðir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður, einn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, einn samkvæmt tilnefningu Félags íslenskra framhaldsskóla, einn samkvæmt tilnefningu Samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands og einn samkvæmt tilnefningu Heimilis og skóla. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Ráðuneytinu hafa borist tilnefningar í nefndina og verða eftirtaldir aðilar skipaðir í hana:
Þórólfur Þórlindsson prófessor, formaður, skipaður án tilnefningar; varamaður Magnús Lyngdal Magnússon sagnfræðingur.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs SA, skipuð án tilnefningar; varamaður Arna Hauksdóttir dósent.
Svandís Ingimundardóttir skólamálafulltrúi, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari; varamaður Lárus H. Bjarnason skólameistari, tilnefnd af Félagi íslenskra framhaldsskóla.
Jón Torfi Jónasson prófessor; varamaður Birna María B. Svanbjörnsdóttir, tilnefnd af Samstarfsnefnd háskólastigsins.
Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ; varamaður Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ, tilnefnd af Kennarasambandi Íslands.
Heimir Eggerz Jóhannsson, formaður SAMTAKA á Akureyri; varamaður Hrefna Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri, tilnefnd af Heimili og skóla.
Ekki verður skipaður varamaður fyrir fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem Svandís Ingimundardóttir var af hálfu sambandsins ein tilnefnd á grundvelli sérþekkingar hennar á viðfangsefninu og starfsskyldna hennar hjá sambandinu.
2. Á hvaða verksviðum stofnunarinnar hafa fagráð verið stofnuð? Hafa fagráðunum verið settar starfsreglur?
Samkvæmt lögum um Menntamálastofnun skal setja reglugerð um stofnun og starf fagráða og liggja fyrir drög að slíkri reglugerð. Forstjóri Menntamálastofnunar mun setja fagráðin á fót þegar reglugerðin hefur tekið gildi. Gert er ráð fyrir fagráðum á eftirtöldum sviðum: a) náms- og gæðamat, b) gerð og miðlun námsgagna og c) upplýsingagjöf og þjónustu. Í fyrirliggjandi drögum að reglugerð er í 4. gr. fjallað um starfshætti fagráða. Þar segir m.a. að fagráð skipti sjálft með sér verkum og setji sér verklagsreglur. Fagráðin starfi samkvæmt árlegri starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar og leggi mat á viðfangsefni sín á grundvelli áreiðanlegra upplýsinga og gagna. Þá er gert ráð fyrir að fagráðin haldi sín á milli að lágmarki einn samráðsfund árlega. Fulltrúar í þeim skulu gæta fyllsta hlutleysis í umfjöllun sinni, gera grein fyrir mögulegum hagsmunatengslum, starfa af vandvirkni og heiðarleika, tileinka sér vinnubrögð sem skapa traust á starfi þeirra og stofnuninni og gæta þagmælsku um það sem þeir fá vitneskju um vegna setu sinnar í fagráði. Upplýsingar um verklagsreglur, starfsemi fagráða og fundargerðir þeirra á að birta á vef stofnunarinnar.