Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 137 — 137. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um samfélagsþjónustu og niðurfellingu fangavistar.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hyggst ráðherra leggja til breytingu á lögum eða reglum um samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar?
2. Hver er afstaða ráðherra til hugmynda um að fella niður fangelsisrefsingu einstaklinga sem hafa beðið afplánunar lengi og hver væru, að mati ráðherra, hugsanleg tímamörk fyrir niðurfellingu fangavistar við slíkar aðstæður?
Skriflegt svar óskast.