Ferill 811. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1479  —  811. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um nýjan tækjakost á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


    Í hvaða tækjum hafa Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri fjárfest á grunni þeirrar tækjakaupaáætlunar sem unnið hefur verið eftir frá árinu 2014? Svar óskast sundurliðað eftir árum, kostnaði og helstu upplýsingum um notkunargildi hvers tækis.


Skriflegt svar óskast.