Ferill 757. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1535  —  757. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um greiðslur Sjúkratrygginga Íslands vegna ferðakostnaðar sjúklinga.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu háar upphæðir greiddu Sjúkratryggingar Íslands árlega 2005–2015 vegna ferðakostnaðar sjúklinga?
     2.      Hversu háar upphæðir greiddu Sjúkratryggingar Íslands á sama tímabili vegna ferðakostnaðar sjúklinga sem fóru með innanlandsflugi? Upplýsingarnar óskast sundurliðaðar eftir árum og flugleiðum.
     3.      Hvert var meðalverð á greiddum flugmiða árið 2015?
    
    Þess ber að geta að upplýsingar fyrir tímabilið 2005–2009 liggja ekki fyrir í kerfi Sjúkratrygginga Íslands nema til komi mikil vinna og aukakostnaður. Verður því svarið við fyrirspurninni miðað við árin 2010–2015.
    Sundurliðun eftir flugleiðum liggur ekki fyrir. Skráning er með þeim hætti að ekki er ávallt ljóst hvort kostnaður vegna ferðar fram og til baka sé vegna tveggja flugferða eða einnar og síðan kílómetragjald eða annars konar kostnaður í hina áttina. Því er ekki mögulegt að áætla meðalverð á greiddum flugmiða og verður því stuðst við meðalkostnað á hvern einstakling.
    Í töflu 1 má sjá yfirlit yfir kostnað vegna innanlandsflugs, fjölda sjúklinga og meðalkostnað.

Tafla 1. Sjúkraflug innan lands – kostnaður og fjöldi
Ár Kostnaður Fjöldi Meðalkostnaður
2010 104.911.240 5.365 19.555
2011 126.572.199 6.090 20.784
2012 145.402.934 6.135 23.701
2013 164.316.578 6.202 26.494
2014 158.978.193 6.016 26.426
2015 173.299.369 6.384 27.146

    Ferðakostnaður vegna sjúklinga sem fljúga utan flokkast ekki sem sjúkraflug heldur er hluti af liðnum „brýn meðferð erlendis“. Siglinganefndarkerfið sem heldur utan um þennan kostnað er orðið gamalt og örðugt er að taka upplýsingar út úr því. Gagngerar endurbætur á því hafa verið á döfinni um nokkurt skeið en hafa því miður ekki komist í framkvæmd. Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands voru keyptir um 3.000 flugmiðar á árunum 2010–2015 vegna sjúklinga og fylgdarmanna, flestir vegna ferða til Kaupmannahafnar (PET, hjartabörn til Lundar í Svíþjóð fljúga á Kastrup), Gautaborgar (líffæraþegar) og Stokkhólms vegna samninga við Karólínska sjúkrahúsið (beinmergsskipti o.fl.).     Í töflu 2 er yfirlit yfir kostnað vegna flugferða til útlanda á hverju ári á tímabilinu 2010–2015.

Tafla 2. Kostnaður vegna utanlandsflugs
Ár Kostnaður
2010 58.188.580
2011 50.447.600
2012 54.498.135
2013 45.877.634
2014 63.025.835
2015 76.266.516