Ferill 825. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1547 — 825. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um endurnýjun ökuskírteina eftir 65 ára aldur.
Frá Valgerði Bjarnadóttur.
1. Hvers vegna er skrifleg heilbrigðisyfirlýsing umsækjanda um endurnýjun ökuskírteinis ekki tekin gild sé hann orðinn 65 ára, sbr. h-lið 2. mgr. 3. gr. reglugerðar um ökuskírteini, nr. 830/2011?
2. Hefur ráðherra hugað að því hvort ástæða sé til að endurskoða ákvæði um endurnýjun ökuskírteina eftir 65 ár aldur?