Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 166  —  165. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um sérhæfð úrræði fyrir börn.

Frá Heiðu Kristínu Helgadóttur.


    Hvernig hyggst ráðherra bregðast við ábendingu Ríkisendurskoðunar í skýrslu um stöðu barnaverndarmála síðan í maí sl. um að tryggja þurfi sérstaklega þjónustu og sérhæfð úrræði fyrir börn á aldrinum 16–18 ára sem glíma við alvarlegan vímuefnavanda og afbrotahegðun og börn með fjölþættan vanda, svo sem þroskaröskun, geðröskun og hegðunarvanda?


Skriflegt svar óskast.