Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 169 — 167. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um áhrif samnings við ESB
um tollaniðurfellingu og tollalækkun á landbúnaðarvörum.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvernig metur ráðherra áhrif samnings við ESB um tollaniðurfellingu og tollalækkun á landbúnaðarvörum á afurðaverð til bænda eftir búgreinum og afurðum?
2. Hvaða áhrif telur ráðherra að samningurinn hafi á markaðshlutdeild íslenskrar framleiðslu á innanlandsmarkaði, þ.e. lambakjöts, nautakjöts, kjúklingakjöts, svínakjöts, eggja og unninna mjólkurvara?
3. Hvaða áhrif telur ráðherra að samningurinn hafi á heildartekjur einstakra búgreina að teknu tilliti til áhrifa á verð til framleiðenda?
4. Hver eru ætluð áhrif auðveldara aðgengis fyrir íslenskar búvörur að innri markaði ESB á framleiðslumagn og verðþróun íslensks landbúnaðarvarnings?
5. Hafa heildaráhrif samningsins á vísitölu neysluverðs verið metin og ef svo er, hver eru þau?
6. Telur ráðherra að samningurinn verði til þess að lækka neytendaverð á þeim vörum sem hann nær til? Verður fylgst með því að svo verði og gripið til einhverra ráðstafana ef ætluð verðlækkun skilar sér ekki?
7. Hefur verið lagt mat á líkleg áhrif aukins skyrkvóta til ESB á íslenska mjólkurframleiðslu og ef svo er, hver eru ætluð áhrif?
Skriflegt svar óskast.