Ferill 837. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1732  —  837. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um Álftafjarðargöng.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvenær er ráðgert að rannsóknir og undirbúningur fyrir jarðgangagerð á milli Skutuls­fjarðar og Álftafjarðar hefjist?

    Forsenda fyrir framkvæmdum á vegum ríkisins, m.a. við veggöng, er fjárveiting á fjárlög­um til þeirra. Ekki er komin fjárveiting til þessa verkefnis.
    Samgönguáætlun er það tæki sem stjórnvöld hafa til að skipuleggja heildstætt samgöngu­kerfi fyrir landið. Alþingi hefur nú til þinglegrar meðferðar þingsályktunartillögu um sam­gönguáætlun 2015–2018. Ekki er gert ráð fyrir þessari framkvæmd í þeirri áætlun. Í sam­gönguáætlun 2015–2026 sem lögð hefur verið fram á Alþingi er ekki heldur gert ráð fyrir þessari framkvæmd.
    Verði þessi jarðgöng eða rannsóknir vegna þeirra sett á áætlun mun tímasetning rannsókna og undirbúnings taka mið af því. Það er hins vegar óákveðið eins og stendur.