Ferill 889. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1738  —  889. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um athugun á rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi.


Flm.: Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að skipa nefnd sem geri úttekt á stöðu einkarekinna fjölmiðla á Íslandi í ljósi aðstæðna á auglýsingamarkaði, tæknibreytinga á undanförnum árum og aukinnar sóknar erlendra aðila inn á íslenskan fjölmiðlamarkað. Nefndin verði skipuð samkvæmt tilnefningum allra flokka sem eiga sæti á Alþingi þannig að hver flokkur tilnefni einn nefndarmann. Að loknum næstu alþingiskosningum skipi ráðherra viðbótarnefndarmenn samkvæmt tilnefningum þeirra flokka sem þá taka nýir sæti á Alþingi. Nefndin skili tillögum um breytingar á lögum og/eða aðrar nauðsynlegar aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi og tryggja að hér fái þrifist fjölbreyttur markaður frjálsra fjölmiðla til fjár­mála- og efnahagsráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra fyrir 15. febrúar 2017.

Greinargerð.

    Fulltrúar einkarekinna fjölmiðla hafa vakið athygli stjórnvalda á erfiðleikum sem blasa við í rekstri þeirra og má rekja til ýmissa utanaðkomandi aðstæðna. Skorað hefur verið á stjórnvöld að gera „nauðsynlegar, málefnalegar og tímabærar breytingar á íslenskri löggjöf til þess að jafna samkeppnisstöðu félaga á íslenskum fjölmiðlamarkaði“.
    Vísbendingar eru um að auglýsingamarkaðurinn hér á landi hafi ekki vaxið sem skyldi þrátt fyrir batnandi efnahag þjóðarinnar, m.a. þar sem sífellt stærri hluti auglýsingafjár sé notaður til að kaupa auglýsingapláss hjá erlendum stórfyrirtækjum á borð við Facebook og Google. Þessi þróun hefur nú þegar áhrif á möguleika íslenskra fjölmiðla til að afla fjár og ekki er fyrirséð hvert þróunin leiðir. Óformlegar athuganir í Danmörku benda til þess að allt að 20% auglýsingafjár danskra auglýsenda sé ráðstafað til erlendra aðila. Hlutfallið er enn sem komið er talið vera umtalsvert lægra hér á landi en gera má ráð fyrir að þróunin verði sú sama og í nágrannaríkjunum. Þá hefur staða Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði einnig tak­markandi áhrif á möguleika annarra fjölmiðla til að afla auglýsingatekna.
    Erlendir aðilar á borð við Netflix, Hulu, Amazon o.fl. hafa leitt tæknilega þróun á aðgengi að svokölluðu ólínulegu myndefni. Þessir aðilar hafa nú þegar talsverð umsvif á íslenskum markaði og hafa m.a. átt þátt í að móta breyttar kröfur íslenskra neytenda. Innlendir aðilar þurfa að aðlaga sig að þeim tæknibreytingum sem erlendir aðilar hafa stuðlað að til að vera í stakk búnir að bjóða sambærilega þjónustu á samkeppnishæfu verði. Athuga þarf hvort ákvæði laga hér á landi hafi fylgt þessari þróun eða hvort þau geri kröfur til íslenskra fyrir­tækja sem hamli þeim í samkeppninni við erlenda aðila.
    Í tillögunni er gert ráð fyrir að skipuð verði nefnd eftir tilnefningum allra flokka sem nú eiga sæti á Alþingi sem og þeirra flokka sem munu eiga sæti á Alþingi að loknum næstu alþingiskosningum sem fyrirhugaðar eru 29. október. Lagt er upp með að nefndin geri tillögur um breytingar á lögum og/eða aðrar nauðsynlegar aðgerðir til að bæta rekstrar­umhverfi og tryggja að hér á landi fái þrifist fjölbreyttur markaður frjálsra fjölmiðla, með tilliti til mikilvægs hlutverks þeirra fyrir lýðræðisþróun og samfélagsumræðu. Nefndin skili tillögum sínum fyrir 15. febrúar 2017.