Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 219 — 211. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um tollgæslu á Seyðisfirði.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hversu oft ár hvert undanfarin fimm ár hafa tollverðir af suðvesturhorni landsins komið til starfa á Seyðisfirði vegna tollafgreiðslu þar og hver hefur kostnaður vegna þessara vinnuferða verið?
2. Eru áform um að breyta mannahaldi tollgæslunnar á Seyðisfirði þannig að minni þörf verði fyrir flutning á mannafla, fíkniefnaleitarhundum og öðru sem til tollgæslunnar þarf úr öðrum landshlutum?
Skriflegt svar óskast.