Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 357  —  309. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um útreikning rekstrarframlaga til símenntunarmiðstöðva.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hvernig gætir ráðherra jafnræðis við útreikning á rekstrarframlögum til símenntunarmiðstöðva í frumvarpi til fjárlaga?
     2.      Hefur ráðherra látið gera reiknilíkan til að gæta fyrrgreinds jafnræðis og ef svo er, hvert er vægi helstu breyta hverrar símenntunarmiðstöðvar í fjárlagagerðinni? Óskað er skýringa í þeim tilvikum þar sem vægi er ólíkt eða breytur mismunandi milli símenntunarmiðstöðva.
     3.      Ef reiknilíkan er til, hvernig notaði ráðherra niðurstöður þess í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2016?
     4.      Ef reiknilíkanið er til en var ekki notað við gerð frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016, hvers vegna var það ekki gert?


Skriflegt svar óskast.