Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 393  —  238. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur
um kaup á bifreiðum fyrir lögregluna.


    Í tilefni af fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir umsögn embættis ríkislögreglustjóra. Þá var við vinnslu svarsins leitað til Ríkiskaupa að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið, en skv. b-lið 9. tölul. 1. mgr. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 71/2013, fer fjármála- og efnahagsráðuneyti með mál er varða Ríkiskaup.

     1.      Hver hefur verið árlegur kostnaður ríkisins af innkaupum á bifreiðum fyrir lögregluna sl. 5 ár og hvað hefur á sama tíma kostað að meðaltali að gera bifreið nothæfa við löggæslustörf?
    Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra hefur kostnaður vegna kaupa á lögreglubifreiðum á tímabilinu 2010–2015 verið samkvæmt eftirfarandi töflu:

2010 2011 2012 2013 2014 2015
Ökutæki 70.693.777 kr. 103.144.313 kr. 46.110.884 kr. 62.035.630 kr. 69.360.478 kr. 55.866.592 kr.
Standsetning
og búnaður
15.387.557 kr. 53.408.126 kr. 3.355.421 kr. 44.321.509 kr. 64.353.674 kr. 39.796.072 kr.
Samtals 86.081.334 kr. 156.552.439 kr. 49.466.305 kr. 106.357.139 kr. 133.714.152 kr. 95.662.664 kr.
Fjöldi bíla 19 16 10 8 12 10
Meðaltal búnaðar og 809.871 kr. 3.338.008 kr. 335.542 kr. 5.540.189 kr. 5.362.806 kr. 3.979.607 kr.

    Taflan ber með sér að kostnaður við standsetningu og búnað bifreiða hefur verið mjög misjafn eftir árum en á því eru ýmsar skýringar. Á árinu 2010 voru t.d. átta bifreiðar, sem áður voru í rekstrarleigu, keyptar og því kom ekki til kostnaður vegna standsetningar á þeim. Þá má nefna að á árinu 2012 var minna keypt af bifreiðum en árin á undan, auk þess sem kaupin fóru fram á seinni hluta ársins og því er hluti af kostnaði þeim tengdum færður til gjalda á árinu 2013. Loks má nefna að í byrjun árs 2014 var ákveðið að endurnýja allan búnað í nýjum ökutækjum. Eldri búnaður var kominn til ára sinna og hafði verið færður á milli ökutækja í áraraðir. Um er að ræða forgangs- og fjarskiptabúnað, radar- og upptökubúnað ásamt tölvubúnaði.

     2.      Hafa Ríkiskaup óskað eftir tilboðum frá bílaframleiðendum sem framleiða sérstakar lögreglubifreiðar og ef svo er, hver er kostnaður að meðaltali við slíka bifreið?
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum hefur stofnunin ekki óskað eftir tilboðum í bíla fyrir lögregluna frá þeim framleiðendum sem framleiða sérstakar lögreglubifreiðar, sé litið til síðustu sex ára. Þar af leiðandi liggja engar kostnaðartölur fyrir um það hjá Ríkiskaupum hvað það mundi kosta að kaupa slíkar bifreiðar.

     3.      Hafa Ríkiskaup skoðað samstarf við önnur ríki á Norðurlöndum við innkaup á bifreiðum fyrir lögregluna?
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum hefur stofnunin ekki skoðað samstarf við önnur ríki á Norðurlöndum um innkaup á bifreiðum fyrir lögregluna á þeim sex árum sem könnuð voru.