Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 409 — 339. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um kynfræðslu
nemenda með þroskahömlun.
Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.
1. Hvernig fer kynfræðsla og fræðsla um einkenni góðs parsambands fram í grunn- og framhaldsskólum fyrir nemendur með þroskahömlun, hvaða námsefni er notað og hver eru skilgreind markmið fræðslunnar?
2. Telur ráðherra að nóg sé að gert hvað varðar kynfræðslu nemenda með þroskahömlun í grunn- og framhaldsskólum?
3. Er áformað að gera breytingar á þessari fræðslu nemenda með þroskahömlun, og þá hverjar?
Skriflegt svar óskast.