Ferill 342. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 420  —  342. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um sveifluleiðréttan frumjöfnuð ríkissjóðs.

Frá Helga Hjörvar.


     1.      Hver var sveifluleiðréttur frumjöfnuður ríkissjóðs sem hlutfall af VLF fyrir árin 2005– 2014, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hver er áætlaður sveifluleiðréttur frumjöfnuður ríkissjóðs sem hlutfall af VLF á yfirstandandi ári?
     3.      Hver er áætlaður sveifluleiðréttur frumjöfnuður ríkissjóðs sem hlutfall af VLF fyrir árið 2016 samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2016?


Skriflegt svar óskast.