Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 425 — 347. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um upplýsingar um ofbeldi
gegn fötluðu fólki og viðbrögð við því.
Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.
1. Starfa lögregluembætti landsins eftir sérstökum vinnu- eða verklagsreglum um viðbrögð þegar grunur kemur upp um ofbeldi gegn fötluðu fólki? Ef svo er, hvaða reglur eru þetta og hvar eru þær aðgengilegar?
2. Er fræðsla um ofbeldisbrot gagnvart fötluðu fólki almennt, og fötluðum stúlkum og konum sérstaklega, þáttur í fagmenntun lögreglumanna og dómara? Ef svo er, hversu umfangsmikil er þessi fræðsla og hverjir eru meginþættir hennar?
3. Eru uppi áform um að breyta vinnureglum og starfsháttum lögreglu með tilliti til rannsóknar á ofbeldisbrotum gegn fötluðu fólki? Ef svo er, í hverju eru þær breytingar einkum fólgnar?
Skriflegt svar óskast.