Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 428  —  211. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur
um tollgæslu á Seyðisfirði.


     1.      Hversu oft ár hvert undanfarin fimm ár hafa tollverðir af suðvesturhorni landsins komið til starfa á Seyðisfirði vegna tollafgreiðslu þar og hver hefur kostnaður vegna þessara vinnuferða verið?
    Við vinnslu svarsins var leitað umsagnar tollstjóra.
    Undanfarin fimm ár hefur tollstjóri nítíu og átta sinnum sent tollverði til Seyðisfjarðar vegna tollafgreiðslu. Samanlagður kostnaður vegna vinnuferða tollvarða á Seyðisfjörð á umræddu tímabili nemur 21.337.114 kr. Sundurliðun kostnaðarins og ferðafjölda eftir árum má sjá í eftirfarandi töflu:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Núna starfa fjórir tollverðir á Austurlandi, tveir eru staðsettir á Eskifirði og tveir á Seyðisfirði. Tollverðirnir sinna ýmsum tollafgreiðslu- og tolleftirlitsstörfum í landshlutanum. Þegar ferjan Norræna kemur til landsins eru tollverðirnir yfirleitt allir við störf á Seyðisfirði.
    Samkvæmt siglingaáætlun hefur ferjan Norræna viðkomu á Seyðisfirði einu sinni í viku allan ársins hring. Stærstur hluti farþega og bifreiða koma til landsins yfir sumarið og þá er ferjan bundin við bryggju á Seyðisfirði í um tvær klukkustundir í hverri viðkomu. Svo að mögulegt sé halda uppi eðlilegu þjónustustigi á þessum skamma tíma þarf stundum að fjölga tollvörðum við tolleftirlit og tollafgreiðslu á Seyðisfirði. Það á sérstaklega við í tilvikum þegar tolleftirlit byggist á áhættumati. Markmiðið með fjölguninni er ávallt að tryggja að tollafgreiðsla og leit vegna tolleftirlits gangi eins hratt fyrir sig og mögulegt er.
    Til að mögulegt sé að halda úti faglegu tolleftirliti sem stenst nútímakröfur þarf sérþekking og sérhæfing að myndast innan embættis tollstjóra. Sú sérhæfing sem einna mest þörf er á þessi missirin snertir leit í bílum, leit í skipum, leit með röntgentækjum og leit og þjálfun fíkniefnaleitarhunda. Í því samhengi er rétt að geta þess að embætti tollstjóra vinnur að innleiðingu Frontex-staðals landamærastofnunar Evrópu en samkvæmt honum er m.a. gert ráð fyrir tiltekinni lágmarksfærni fíkniefnaleitarhunda. Til að lágmarksfærni verði tryggð er talið mikilvægt að slíkir hundar séu í stöðugri þjálfun. Sú þjálfun þarf m.a. að eiga sér stað í vinnu við raunveruleg verkefni. Þá mælir Frontex með því að leitarhundar séu þjálfaðir af aðalhundaþjálfara a.m.k. einu sinni í viku en aðalhundaþjálfari tollstjóra er staðsettur á höfuðborgarsvæðinu. Þá er rétt að geta þess að hluti þeirra starfsmanna sem hafa verið sendir til Seyðisfjarðar til að sinna tolleftirliti eru sérfræðingar sem sinna eftirliti með tækjum sem eru í röntgenbíl embættisins.
    Starfsstöðvar flestra sérhæfðra starfsmannana embættisins eru á suðvesturhorni landsins þar sem stærstur hluti verkefnanna er unninn. Ef tryggja á hagkvæmustu nýtingu mannafla við tolleftirlit er nauðsynlegt að forgangsraða þannig að flestir tollverðir hafi starfsstöð þar sem umfang farþega og vöruflæðis er mest. Í því sambandi er rétt að benda á að yfir 95% þeirra manna sem koma til landsins fara í gegnum Keflavíkurflugvöll. Þá er flæði vara langmest á suðvesturhorni landsins.

     2.      Eru áform um að breyta mannahaldi tollgæslunnar á Seyðisfirði þannig að minni þörf verði fyrir flutning á mannafla, fíkniefnaleitarhundum og öðru sem til tollgæslunnar þarf úr öðrum landshlutum?
    Starfsemi embættis tollstjóra tekur hverju sinni fyrst og fremst mið af þeim verkefnum sem embættinu ber lögum samkvæmt að inna af hendi. Við embættið starfa um 250 starfsmenn á tíu starfsstöðvum um allt land. Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og hjá embætti tollstjóra er markvisst unnið að því að gera innheimtu opinberra gjalda og framkvæmd tollamála árangursríkari, einfaldari og hagkvæmari. Á þessari stundu er þörfin einna helst fyrir fjölgun tollvarða á Keflavíkurflugvelli vegna mikillrar fjölgunar ferðamanna sem fara um flugvöllinn. Eins og málum er háttað er ekki fyrirsjáanlegt að verulegra breytinga sé þörf á mannahaldi og framkvæmd tolleftirlits og tollafgreiðslu á öðrum starfsstöðvum.