Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 435 — 290. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur
um útgjöld vegna sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstarfa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu miklu fé hefur verið varið til kaupa á sérfræði- ráðgjafar- og kynningarstörfum fyrir ráðuneytið frá upphafi árs 2014? Hverjir hafa fengið greiðslur af þessum ástæðum og fyrir hvaða verkefni?
Ráðuneytið hefur frá ársbyrjun 2014 varið 12.368.662 kr. án vsk. til kaupa á sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörfum, sbr. meðfylgjandi yfirlit yfir þjónustuaðila og verkefni sem unnin voru.
| Þjónustuaðili og verkefni | Kr. án vsk. |
| Aðalheiður Jóhannsdóttir | 90.726 |
| Ráðgjöf vegna breytingar á lögum um náttúruvernd. | 90.726 |
| Attentus – Mannauður og ráðgjöf ehf. | 4.800.053 |
| Ráðgjöf í mannauðsmálum. | 4.800.053 |
| Efla hf. | 158.091 |
| Ráðgjafarvinna vegna gæðakerfis. | 158.091 |
| Guðný Björnsdóttir | 420.400 |
| Lögfræðivinna vegna reglugerðar um starfsábyrgðartryggingar hönnuða og byggingarstjóra. | 100.400 |
| Lögfræðivinna vegna réttarstöðu þeirra sem verða fyrir tjóni vegna myglusvepps. | 320.000 |
| Íslenskar orkurannsóknir | 483.492 |
| Fagleg leiðsögn varðandi vinnslu jarðvarma á Reykjanesi. | 55.580 |
| Vinna við jarðfræðiþema INSPIRE. | 427.912 |
| KPMG ehf. | 501.050 |
| Útreikningur á meðalverði losunarheimilda. | 501.050 |
| Landslag ehf. | 192.500 |
| Vinna í ráðgjafarnefnd um landskipulagsstefnu. | 192.500 |
| Landsnot ehf. | 23.000 |
| Vinna við landskiptakort. | 23.000 |
| Listasafn Íslands | 14.850 |
| Vinna vegna listaverka. | 14.850 |
| Nýjar víddir ehf. | 30.000 |
| Vinna vegna umhverfisviðurkenningar. | 30.000 |
| Sigurður Norðdal | 1.311.000 |
| Ráðgjafarstörf vegna samþættingu verkefna og stofnana. | 1.311.000 |
| Strategía ehf. | 4.310.500 |
| Ráðgjafarvinna vegna athugunar á sameiningu skógræktarstarfs. | 2.338.000 |
| Ráðgjafarvinna vegna frumathugunar á samlegð stofnana á sviði rannsókna og vöktunar. | 1.972.500 |
| Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. | 33.000 |
| Yfirlestur verkefnislýsingar fyrir norrænt verkefni. | 33.000 |
| Heildarsumma | 12.368.662 |