Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 442 — 245. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn
frá Svandísi Svavarsdóttur um ferð til Kína.
1. Hver hafði frumkvæði að því að ráðherra færi í vinnuferð til Kína 20. mars 2014?
Þann 23. október 2014 kom Ding Wei, aðstoðarráðherra menningarmála í Kína, ásamt sendinefnd í opinbera heimsókn hingað til lands, þar sem undirrituð var viljayfirlýsing um samstarf þjóðanna í menningarmálum.
Á fundi ráðherranna buðu kínversk stjórnvöld mennta- og menningarmálaráðherra Íslands að heimsækja Kína í vinnuferð og var gengist við boðinu með bréfi til Luo Shugang, menningarmálaráðherra Kína, dags. 7. janúar 2015. Í bréfinu komu fram þakkir til Ding Wei fyrir að hafa boðið mennta- og menningarmálaráðherra til Kína til að heimsækja menningarmálaráðuneytið þar í landi. Jafnframt kom fram að hentugt yrði af hálfu mennta- og menningarmálaráðherra Íslands að eiga fundi með ráðherrum mennta- og vísindamála í ferðinni, ef því yrði komið við af þeirra hálfu.
Frumkvæði að vinnuferð sendinefndar mennta- og menningarmálaráðuneytis til Kína 20. mars 2014 kom því frá kínverskum stjórnvöldum.
2. Hvert var hlutverk utanríkisráðuneytisins við skipulagningu og framkvæmd ferðarinnar?
Utanríkisráðuneytið annaðist, eins og alla jafna þegar heimsóknir íslenskra sendinefnda á vegum stjórnvalda eru annars vegar, undirbúning ferðar, skipulag dagskrár og hafði með höndum önnur hagnýt atriði heimsóknarinnar, svo sem skipulag samgangna og hótelbókanir. Utanríkisráðuneytið annaðist einnig samskipti við kínversk stjórnvöld og kom á fundum við kínverska ráðherra, forstöðumenn vísindastofnana, háskóla o.fl.
Utanríkisráðuneytið hlutaðist þar að auki til um tilbúning samstarfssamnings Rannís og náttúruvísindastofnunar Kína á sviði hafvísinda, rannsókna á Norðurslóðum, rannsókna á hnattrænni hlýnun og jarðfræði, sem og undirbúning viljayfirlýsingar mennta- og menningarmálaráðuneytis Íslands og tækni- og vísindamálaráðuneytis Kína um stofnun kínversk- íslenskrar rannsóknar- og þróunarmiðstöðvar á sviði jarðvarma, í samstarfi við orkumálastjóra og vísindaráðuneyti Kína.
3. Hefur ráðherra mennta-, menningar- og vísindamála áður farið sambærilega ferð til Kína eða annarra ríkja?
Frá árinu 2003 hafa ráðherrar mennta-, menningar- og vísindamála farið í þrjár ferðir sem sambærilegar eru við vinnuheimsókn sendinefndar mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá því í mars síðastliðnum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, fór í opinbera heimsókn til Kína dagana 14.–19. september 2006 í boði Sun Jiazheng, menningarmálaráðherra Kína. Með heimsókninni var heimsókn kínverska ráðherrans til Íslands árið 2003 endurgoldin.
Menntamálaráðherra átti í þeirri heimsókn fund með Sun Jiazheng föstudaginn 15. september 2006. Ræddu ráðherrarnir samstarf ríkjanna á sviði menningarmála, m.a. á vettvangi UNESCO. Einnig var undirritað samkomulag um menningarsamskipti Íslands og Kína árin 2007–2010. Á fundinum kom fram að stjórnvöld beggja ríkja hygðust stuðla að og greiða fyrir beinum tengslum og skiptiheimsóknum listamanna og stjórnenda á listasviðinu, sem og háskólakennara og námsmanna milli Kína og Íslands.
Menntamálaráðherra átti í heimsókninni jafnframt fund með Chen Zhili, fyrrum menntamálaráðherra og fulltrúa í kínverska ríkisráðinu. Chen var þá æðsti yfirmaður mennta- og vísindamála í Kína og kom í kjölfarið til Íslands til að kynna sér starfsemi íslenskra háskóla.
Einnig átti ráðherra fund með Zhou Ji, menntamálaráðherra Kína, og Shang Jong, ráðherra vísinda- og tæknimála.
Á fundum með kínverskum ráðherrunum kom í ljós mikill áhugi á að efla samstarf ríkjanna á sviði mennta- og vísindamála. Chen Zhili og Zhou Ji lýstu yfir áhuga Kínverja á að starfrækja svonefnda Konfúsíusar-miðstöð á Íslandi. Markmið þeirra er að miðla kennslu á kínverskri tungu og efla þekkingu á kínverskri menningu.
Í heimsókninni lýsti menntamálaráðherra Kína áhuga á eflingu samskipta á sviði vísindarannsókna, m.a. með sameiginlegum rannsóknarverkefnum íslenskra og kínverskra vísindamanna og háskóla. Þá lýstu Kínverjar hug á að kínverskir háskólar gætu boðið upp á sameiginlegar námsgráður í samvinnu við íslenska háskóla.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, fór einnig í opinbera heimsókn til Indlands í lok febrúar 2006, í stað Geirs H. Haarde, þáverandi utanríkisráðherra. Tekið skal fram að menntamálaráðherra fór í þá ferð sem staðgengill utanríkisráðherra. Í heimsókninni átti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, m.a. fund með dr. A.P.J. Abdul Kalam, þáverandi forseta Indlands. Á fundinum var rætt um tvíhliða samskipti ríkjanna á fjölmörgum sviðum, einkum hvað varðar vísindi og tækni.
Ráðherra átti einnig fund með Kapir Sibal, vísinda- og rannsóknamálaráðherra Indlands, þar sem rædd var m.a. samvinna Íslands og Indlands á sviði jarðskjálftarannsókna og framkvæmd samkomulags ríkjanna um vísindasamvinnu sem undirritað var í Reykjavík haustið 2005.
Þá fór Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, í opinbera heimsókn til Mexíkó 10.–14. mars 2008, ásamt forseta Íslands. Í heimsókninni undirritaði menntamálaráðherra ásamt ráðherrum frá Mexíkó m.a. tvísköttunarsamning, samkomulag um vegabréfsáritanir, í því skyni að auðvelda ferðir fólks á milli landanna, og minnisblað um samvinnu í orkumálum fyrir hönd utanríkisráðuneytis.
Einnig átti ráðherra fundi með menntamálaráðherra, menningarmálaráðherra og vísindastjóra Mexíkó þar sem ræddir voru möguleikar á tvíhliða samstarfi ríkjanna. Á fundi ráðherra með menningarmálaráðherra Mexíkó kom fram að mikill áhugi væri á menningarsamskiptum á milli Íslands og Mexíkó. Á fundinum ræddu ráðherrarnir m.a. um möguleika þess að fá verk Fridu Kahlo á sýningu hingað til lands, þátttöku í norrænni sýningu um víkinga í Mexíkó árið 2011, þátttöku íslenskra listamanna á tónlistarhátíðum í Mexíkó og bókmenntaþýðingar.
Þá var menntamálaráðherra einnig viðstaddur undirritun samnings milli Háskólans í Reykjavík og CONAHEC í Monterrey-háskólanum þar sem íslensku orkuskólarnir REYST og RES kynntu jafnframt starfsemi sína.
Ráðherra afhenti í heimsókninni forseta Mexíkó viljayfirlýsingu um skólastyrki en með henni gafst háskólastúdentum frá Mexíkó færi á að stunda nám á Íslandi. Um var að ræða sex mánaða skólavist með styrkveitingu annars vegar og námsstyrk í miðaldafræðum hins vegar.
Rétt er að taka fram að ekki voru kannaðar heimsóknir sem kann að hafa verið farið í fyrir árið 2003.
4. Hvenær var eftirtöldum aðilum boðið að taka þátt í dagskrá ráðherra í ferðinni: rektor Háskóla Íslands, rektor Háskólans á Akureyri, rektor Listaháskóla Íslands, rektor Háskólans í Reykjavík, forstöðumanni Rannís, fulltrúum Marels og fulltrúum Orku Energy, og hvenær lá þátttaka þeirra fyrir?
Rektorum Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík var boðið að taka þátt í dagskrá sendinefndarinnar af ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytis þann 18. febrúar 2015. Þátttaka rektora HÍ og HR lá fyrir í fyrstu drögum að dagskrá frá sendiráði Íslands í Peking, dags. 6. mars 2015, en rektor HA afþakkaði þátttöku í ferðinni 13. mars 2015.
Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær rektor Listaháskóla Íslands fékk boð um þátttöku í dagskrá sendinefndarinnar, en ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytis bauð rektornum til þátttöku í ferðinni símleiðis. Í fyrstu dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, dags. 6. mars 2015, er gert ráð fyrir þátttöku rektors Listaháskólans.
Forstöðumaður Rannís fékk boð um þátttöku í dagskrá sendinefndarinnar frá skrifstofu mennta- og menningarmála í byrjun mars 2015 og þátttaka Rannís lá fyrir í fyrstu dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, dags. 6. mars 2015.
Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær fulltrúum Marels og Arctic Green Energy (áður Orku Energy) var boðið til þátttöku í dagskrá sendinefndarinnar, en í drögum að dagskrá frá sendiráði Íslands í Peking, dags. 17. mars, þremur dögum fyrir brottför sendinefndar mennta- og menningarmálaráðuneytis frá Íslandi lá þátttaka þeirra fyrir.
5. Hvers vegna var heimsókn á jarðhitasvæði í nágrenni Peking hluti af dagskrá ráðherra, hver hafði frumkvæði að þeirri heimsókn og hverjir fylgdu honum þangað?
Hér er gert ráð fyrir að átt sé við heimsókn á jarðhitasvæði í nágrenni Baoding, sem er vinaborg Hafnarfjarðar, en ekki Peking. Heimsóknin var hluti af dagskrá ráðherra að tillögu og frumkvæði sendiráðs Íslands í Peking.
Hvað varðar skýringar á því að utanríkisráðuneytið lagði til að farið skyldi í heimsókn á jarðhitasvæði í nágrenni Baoding er til þess að líta að allt frá árinu 2002 hafa íslenskir ráðamenn verið áhugasamir um samstarf Íslands og Kína á sviði jarðvarmanýtingar og -rannsókna. Þann 3. júní það sama ár átti Siv Friðleifsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra Íslands, til að mynda fund með utanríkisráðherra Kína, Xie Zhenhua og fleiri kínverskum ráðamönnum. Á fundinum var mögulegt samstarf Íslands og Kína um endurnýjanlega orku rætt, auk þess sem sérstaklega var rætt um samstarfsverkefni Enex og Orkuveitu Reykjavíkur annars vegar og Sinopec hins vegar um jarðhitavirkjun til húshitunar í Peking.
Frá árinu 2002 hefur mikið vatn runnið til sjávar í þessu samstarfi, en frá þeim tíma hefur það iðulega verið rætt á fundum íslenskra og kínverskra ráðamanna. Sem dæmi má nefna að Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, fundaði með He Guoqiang, flokksritara í stjórnmálanefnd miðstjórnar kínverska kommúnistaflokksins, 9. júní 2010. Á fundinum var fjallað um vaxandi samstarf ríkjanna á sviði orkumála auk þess sem rammasamningur Enex Kína/Geysis Green Energy og Sinopec um samstarf um byggingu hitaveitna í Kína var undirritaður í viðurvist ráðherranna.
Þá fundaði Össur Skarphéðinsson um sama mál með Wen Jiabao, þáverandi forsætisráðherra Kína, um jarðhitamál þann 21. apríl 2012. Á fundinum lagði þáverandi utanríkisráðherra Íslands kapp á að auka samvinnu þjóðanna í jarðhitamálum. Á sama fundi undirrituðu Arctic Green Energy og Sinopec rammasamning sín í milli um að jarðvarmavirkjanir í sameiginlegri eigu félaganna mundu hita upp 100 milljónir fermetra af húsnæði fyrir árið 2020, en samstarf á milli þeirra hefur staðið yfir um árabil.
Íslenskir ráðamenn hafa á undanförnum árum gjarnan verið viðstaddir undirritanir samstarfssamninga á milli íslenskra og kínverskra fyrirtækja á sviði jarðvarma, einkum á milli Arctic Green Energy annars vegar og Sinopec hins vegar, en í sameiningu hafa þessi fyrirtæki reist stærstu hitaveitu í heimi í Xian í Shaanxi-héraði í Kína. Sigríður Anna Þórðardóttir, sem þá var umhverfisráðherra, var viðstödd undirritun samstarfssamnings um uppbyggingu þessarar hitaveitu, í Peking 18. maí 2005. Samningurinn var á milli íslenskra orkufyrirtækja og Íslandsbanka annars vegar og Sinopec og Xianyang-borgar hins vegar.
Allra síðustu ár hafa kínversk stjórnvöld verið sérlega áhugasöm um að auka enn frekar samstarf við íslensk stjórnvöld og fyrirtæki á þessu sviði. Í nokkrum fjölda opinberra heimsókna íslenskra ráðherra til Kína og kínverskra ráðamanna til Íslands, hefur jarðhitasamstarf þjóðanna iðulega borið á góma.
Að auki hefur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setið meira en 20 fundi frá árinu 2007 þar sem rætt hefur verið um samstarf Íslendinga og Kínverja á sviði orkumála. Um helmingur þessara funda hefur verið í viðurvist stjórnenda Arctic Green Energy eða Sinopec, en fyrirtækin hafa eins og fyrr greinir átt langt og náið samstarf um nýtingu jarðvarma.
Þann 12. febrúar 2012 sýndi ríkissjónvarp Kína, CCTV, heimildarþátt um jarðhitasamvinnu Íslendinga og Kínverja í Baoding borg. Í þættinum var m.a. rætt við Pál Valdimarsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, og Kristínu A. Árnadóttur, þáverandi sendiherra Íslands í Peking. Einnig var rætt við Wang Yongxin, varaflokksritara Baoding-borgar og fjölda kínverskra jarðhitasérfræðinga, sem flestir hafa hlotið menntun í Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Í þættinum kom m.a. fram að 1,6 milljónir fermetra væru nú upphitaðir með jarðhita í Baoding-borg, sem dragi úr 120.000 tonnum af kolefnisútblæstri á ári hverju. Jafnframt kom fram að kínversk yfirvöld gerðu sér vonir um að jarðhitaverkefni mundu draga verulega úr mengun í borginni, sem skyldi verða að fyrirmynd annarra kínverskra borga í þeim efnum.
Þátturinn var afrakstur af samstarfi kínverska ríkissjónvarpsins CCTV og íslenska sendiráðsins í Peking, en sendiráðið hefur fylgst náið með jarðhitasamvinnu Íslendinga og Kínverja í gegnum tíðina og verið stjórnvöldum og fyrirtækjum innan handar vegna hennar.
Skömmu eftir að þátturinn var sýndur í kínverska ríkissjónvarpinu var undirrituð viljayfirlýsing á milli utanríkisráðuneytis Íslands og jarðnýtingar- og auðlindaráðuneytis Kína um samstarf á sviði jarðvarma og jarðvísinda, en Össur Skarphéðinsson, þáverandi utanríkisráðherra, undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd Íslands í apríl 2012. Í viljayfirlýsingunni er lögð sérstök áhersla á að stjórnvöld beggja landa auki samstarf sitt á sviði rannsókna- og þróunar í jarðhitamálum, einkum í þróunarlöndum.
Innan við ári síðar, eða 15. apríl 2013, gáfu þáverandi forsætisráðherra Íslands, Jóhanna Sigurðardóttir, og forsætisráðherra Kína, Li Keqiang, út sameiginlega yfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórna Íslands og Kína um að efla víðtækt tvíhliða samstarf sín á milli, þar á meðal um samskipti og hagnýtt samstarf á sviði jarðvarma og jarðvísinda. Yfirlýsingin var gefin út í Peking, en hún var síðar lögð fram sem fylgiskjal með þingsályktunartillögu um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Kína.
Hvað dagskrá sendinefndar mennta- og menningarmálaráðuneytis í vinnuheimsókn til Kína í mars 2015 áhrærir kemur fram í tölvupósti, sem var birtur á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins 29. október síðastliðinn, að sendiherra Íslands í Peking leggi til að vinnuferðin verði lengd um einn dag í því skyni að ráðherra fari til Xian að skoða hitaveitu Arctic Green Energy og Sinopec, sem er sú stærsta í heimi eins og fyrr greinir. Sendiráðið hafði skömmu áður skipulagt skoðunarferð Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í hitaveituna 30. júní 2014 þegar hann var í opinberri heimsókn í Kína og fundaði með borgarstjóra Xianyang, að því er kemur fram í dagskrá þeirrar ferðar.
Í tölvupósti frá sendifulltrúa sendiráðs Íslands í Peking, dags. 6. mars 2015, er fyrstu dagskrárdrög berast mennta- og menningarmálaráðuneyti vegna vinnuheimsóknarinnar, er þess getið að komnir séu upp bakþankar innan sendiráðsins um að sendinefndin fari til Xian. Ástæðan sé vegna þess hve dýrt er að ferðast til borgarinnar, auk þess sem borgin sé mjög vinsæll viðkomustaður erlendra ráðherra sem dragi úr vægi heimsóknar til borgarinnar. Þessi tölvupóstur var einnig birtur á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins 29. október síðastliðinn.
Í tölvupósti sendifulltrúans er lagt til að förinni verði þess í stað heitið til Baoding. Tillagan er útskýrð þannig að borgin sé bæði stór og fjölmenn, auk þess sem hún sé í ökufæri við Peking og ferðakostnaði yrði þannig haldið í lágmarki. Auk þess hafi hún verið gerð að fyrirmynd fyrir önnur svæði í Kína um jarðhitanýtingu, en þar sé einnig öflugur háskóli sem sé líklegur til að sinna samskiptum við Ísland og senda nemendur til íslenskra háskóla. Þessu til viðbótar hafi borgaryfirvöld í Baoding verið áhugasöm um samskipti við Ísland, en borgin er eins og áður segir vinaborg Hafnarfjarðarbæjar.
Ætla má að framangreint hafi haft áhrif þegar dagskrá ferðarinnar var í undirbúningi í sendiráði Íslands í Peking, en för sendinefndarinnar til Baoding var eins og fyrr segir farin að ráðleggingum og að frumkvæði utanríkisráðuneytisins.
Samkvæmt dagskrá ferðarinnar, dags. 20. mars 2015, voru með í för á jarðhitasvæði í grennd við Baoding sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis, starfsfólk úr sendiráði Íslands í Peking og hópur sem samanstóð af fulltrúum fyrirtækjanna Marels og Arctic Green Energy.
6. Hvert var efni fundar ráðherra með borgarstjóra Peking og hverjir sátu þann fund með ráðherra?
Líkt og við fyrri spurningu er hér gert ráð fyrir að átt sé við borgarstjóra Baoding en ekki Peking.
Á fundi með borgarstjóra Baoding var talsvert rætt um stefnu borgarinnar hvað varðar matvælaöryggi og möguleika fyrirtækisins Marel til að styðja við þá stefnu. Jafnframt var rætt um uppbyggingu jarðvarmaveitna ásamt mögulegu samstarfi á sviði menntamála.
Samkvæmt dagskrá frá sendiráði Íslands í Peking voru með í för átta manna sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis, fjögurra manna hópur frá sendiráði Íslands í Peking og hópur sem samanstóð af fulltrúum fyrirtækjanna Marels og Arctic Green Energy.
7. Hvenær voru einstakir liðir í dagskrá ráðherra í vinnuferð hans til Kína ákveðnir? Óskað er eftir dagsetningum á óskum um fundi, heimsóknir eða aðra viðburði sem voru á dagskránni og jafnframt dagsetningum á staðfestingum á þátttöku ráðherrans í umræddum viðburðum.
Mótun dagskrár og skipulag hennar hvíldi á herðum sendiráðs Íslands í Peking. Dagskrárdrögin sýna hvernig skipulag ferðarinnar mótaðist og eru birt hér á eftir.
Ráðherra tók þátt í öllum þeim viðburðum sem ákveðnir höfðu verið þegar lokadagskrá var lögð fram 20. mars 2015.
Í fyrstu dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, frá 6. mars 2015, var dagskráin eftirfarandi:
Laugardagur 21. mars:
09:55 – Móttaka sendinefndar í vinnuheimsókn til Kína. Móttakendur eru Hong Ning, aðstoðarsviðsstjóri (e. Deputy Division Chief) og Jan Lian, verkefnastjóri hjá alþjóðasviði menningarmálaráðuneytis Kína
Í sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis eru:
1) Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
2) Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri
3) Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála
4) Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála
5) Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
6) Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
7) Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
8) Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
9) Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
11:00 – Ferðast á Kempinsky Hotel í Peking
12:30 – Hádegisverður á hótelinu
Síðdegi – Skoðunarferðir eða verslun, valmöguleikar:
Kínamúrinn
Forboðna borgin og Tian'an Men-torg
National Museum of China
19:00–20:00 – Undirbúningskvöldverður með Stefáni Skjaldarsyni, sendiherra Íslands í Kína og Birgit Nyborg í sendiherrabústaðnum
Sunnudagur 22. mars:
Valmöguleiki eitt (ótímasettir dagskrárliðir):
Brottför til Xi'an
Koma til Xi'an og hádegisverður
Skoðunarferðir, valmöguleikar:
1. Terracotta stríðsmenn og hestar
2. Xi'an borgarmúrinn
3. Shaanxi héraðssafnið
Fundur með embættismanni frá Shaanxi sem hefur forgöngu fyrir menningar-, mennta- og vísindamál
Sýning (í stíl Tang keisaraættarinnar)
Valmöguleiki tvö (ótímasettir dagskrárliðir):
Morgunn – Brottför til Baoding með rútu (tveggja tíma akstur) eða frekari skoðunarferðir í Peking
Hádegi – Hádegisverður
Síðdegi – Heimsókn í Xiongxian hérað – jarðhitahéraðið eða brottför til Baoding með rútu
Kvöld – Aftur til Baoding
Kvöldverður eða fundur með borgarstjóra Baoding og dvöl í Baoding
Mánudagur 23. mars:
Framhald á valmöguleika eitt:
Morgunn – Heimsókn til Xianyang-jarðhitahéraðsins
Hádegi – Fundur með borgarstjóra Xianyang eða aðstoðarborgarstjóra, þar á eftir móttökuhádegisverður
Fleiri skoðunarferðir um Peking
Framhald valmöguleika tvö:
Morgunn – Brottför til Xiongxian-héraðs – jarðhitahéraðsins
Hádegi – Hádegisverður í Xiongxian-héraði
Síðdegi – Skoðunarferðir
Kvöld – Aftur til Peking með rútu
Frá þriðjudegi 24. mars til fimmtudags 26. mars mun sendinefndin sækja opinbera viðburði í Peking, þeirra á meðal:
1) Fundi með:
a) Luo Shugang, ráðherra menningarmála
b) Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála, þar sem viljayfirlýsing verður undirrituð (bíður staðfestingar)
c) Yuan Guiren, ráðherra menntamála
d) Fu Chengyu, stjórnarformaður Sinopec
2) Háskóla:
a) Heimsókn í Tsinghua-háskóla, sem Háskóli Íslands hefur samstarfssamning við og Háskólann í Reykjavík hyggst gera sambærilegan samning við
b) Heimsókn í Listaháskóla Kína
c) Náttúruvísindastofnun Kína
3) Skoðunarferðir eða söfn
Þriðjudagur 24. mars:
10:00 – Fundur með Luo Shugang, ráðherra menningarmála í Kína
15:00 – Fundur með Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála
Miðvikudagur 25. mars:
17:00–19:00 – Tónleikar og hlaðborðsmóttaka í sendiráðinu
Fimmtudagur 26. mars – Dagskrá er auð
Föstudagur 27. mars:
11:55 – Brottför til Amsterdam
Í dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, dags. 10. mars, er dagskráin eftirfarandi:
Laugardagur 21. mars:
09:55 – Móttaka sendinefndar í vinnuheimsókn til Kína. Móttakendur eru Hong Ning, aðstoðarsviðsstjóri (e. Deputy Division Chief) og Jan Lian, verkefnastjóri hjá alþjóðasviði menningarmálaráðuneytis Kína.
Í sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis eru:
1) Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
2) Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri
3) Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála
4) Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála
5) Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
6) Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
7) Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
8) Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
9) Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
11:00 – Ferðast á Kempinsky Hotel í Peking
12:30 – Hádegisverður á hótelinu
13:30 – Brottför til Mitianyu-hluta Kínamúrsins í Huariou-héraði
14:45 – Koma til Kínamúrsins
17:00 – Brottför til sendiherrabústaðsins
19:00–20:00 – Undirbúningskvöldverður með Stefáni Skjaldarsyni, sendiherra Íslands í Kína og Birgit Nyborg í sendiherrabústaðnum
Sunnudagur 22. mars:
8:00 – Morgunverður
9:00 – Brottför til Tian'an Men-torgs
9:30 – Koma til torgsins og myndataka
10:00 – Brottför til Xiongxian-hrepps (e. prefecture), undirhrepps Baoding
11:30 – Koma til Xiongxian-hrepps og óformlegur hádegisverður
14:00 – Brottför til íslensk-kínversku jarðhitamiðstöðvarinnar og skoðunarferð
18:00 – Koma á jarðhitabaðstað í Xiongxioan-hrepp iog innritun
19:00 – Óformlegur kvöldverður í boði hreppsstjórnar Xiongxian
Mánudagur 23. mars:
8:00 – Morgunverður
8:30 – Brottför til Baoding
9:30 – Heimsókn í Hebei-háskóla í Baoding
11:30 – Fundur með Ma Yufeng, borgarstjóra Baoding, og hádegisverður í kjölfarið
14:00 – Brottför til Peking
16:00 – Aftur til Peking og heimsókn á listrænt svæði eða safn (bíður staðfestingar)
18:00 – Kvöldverður í boði dr. Annie Wu
Frá þriðjudegi 24. mars til fimmtudags 26. mars, mun sendinefndin sækja opinbera viðburði í Peking, þeirra á meðal:
1) Fundi með:
a) Luo Shugang, ráðherra menningarmála
b) Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála, þar sem viljayfirlýsing verður undirrituð (bíður staðfestingar)
c) Yuan Guiren, ráðherra menntamála
d) Fu Chengyu, stjórnarformaður Sinopec
e) Yang Wei, forstöðumaður Náttúruvísindastofnunar Kína
2) Háskóla
a) Heimsókn í Tsinghua háskóla, sem Háskóli Íslands hefur samstarfssamning við og Háskólann í Reykjavík vill komast í samskipti við
b) Heimsókn í Listaháskóla Kína
c) Heimsókn í tónlistarsafn Kína (e. China Conservatory of Music)
3) Skoðunarferðir eða söfn:
Þriðjudagur 24. mars:
10:00 – Fundur með Luo Shugang, ráðherra menningarmála í Kína
15:00 – Fundur með Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála, þar sem viljayfirlýsing verður undirrituð
Miðvikudagur 25. mars:
Morgunn – Fundur með Fu Chengyu, stjórnarformanni Sinopec (bíður staðfestingar)
17:00–19:00 – Tónleikar og hlaðborðsmóttaka í sendiráðinu
Fimmtudagur 26. mars: Dagskrá er auð
Föstudagur 27. mars:
11:55 – Brottför til Amsterdam
Í dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, frá 11. mars 2015, er dagskráin eftirfarandi:
Laugardagur 21. mars:
09:55 – Móttaka sendinefndar í vinnuheimsókn til Kína. Móttakendur eru Hong Ning aðstoðardeildarstjóri (e. Deputy Division Chief) og Jan Lian, verkefnastjóri hjá alþjóðasviði menningarmálaráðuneytis Kína
Í sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis eru:
1) Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
2) Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri
3) Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála
4) Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála
5) Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
6) Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
7) Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
8) Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
9) Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
11:00 – Ferðast á Kempinsky Hotel í Peking
12:30 – Hádegisverður á hótelinu
13:30 – Brottför til Mitianyu-hluta Kínamúrsins í Huariou-héraði
14:45 – Koma til Kínamúrsins
17:00 – Brottför til sendiherrabústaðsins
19:00–20:00 – Undirbúningskvöldverður með Stefáni Skjaldarsyni, sendiherra Íslands í Kína og Birgit Nyborg í sendiherrabústaðnum
Sunnudagur 22. mars:
8:00 – Morgunverður
9:00 – Brottför til Tian'an Men torgs
9:30 – Koma til torgsins og myndataka
10:00 – Brottför til Xiongxian hrepps (e. prefecture), undirhrepps Baoding
11:30 – Koma til Xiongxian hrepps og óformlegur hádegisverður
14:00 – Brottför til íslensk-kínversku jarðhitamiðstöðvarinnar og skoðunarferð
18:00 – Koma á jarðhitabaðstað í Xiongxioan hrepp og innritun
19:00 – Óformlegur kvöldverður í boði hreppsstjórnar Xiongxian
Mánudagur 23. mars:
8:00 – Morgunverður
8:30 – Brottför til Baoding
9:30 – Heimsókn í Hebei-háskóla í Baoding
11:30 – Fundur með Ma Yufeng, borgarstjóra Baoding, og hádegisverður í kjölfarið
14:00 – Brottför til Peking
16:00 – Aftur til Peking og heimsókn á listrænt svæði eða safn (bíður staðfestingar)
18:00 – Kvöldverður í boði dr. Annie Wu í Peking Jockey Club
Frá þriðjudegi 24. mars til fimmtudags 26. mars, mun sendinefndin sækja opinbera viðburði í Peking, þeirra á meðal:
1) Fundi með:
a) Yuan Guiren, ráðherra menntamála
2) Háskóla:
a) Heimsókn í Tsinghua-háskóla, sem Háskóli Íslands hefur samstarfssamning við og Háskólann í Reykjavík vill komast í samskipti við
b) Heimsókn í tónlistarsafn Kína (e. China Conservatory of Music)
c) Hebei-háskóli
3) Skoðunarferðir eða söfn:
Þriðjudagur 24. mars:
10:00 – Fundur með Luo Shugang, ráðherra menningarmála í Kína
15:00 – Fundur með Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála, þar sem viljayfirlýsing verður undirrituð
Miðvikudagur 25. mars:
Morgunn – Fundur með Fu Chengyu, stjórnarformanni Sinopec (bíður staðfestingar)
14:00–15:00 – Fundur með Yang Wei, forstöðumanni náttúruvísindastofnunar Kína. Undirritun samnings á milli Rannís og náttúruvísindastofnunar Kína
16:00 – Farið í sendiráðið. Fundir með leiðtogum hafmálastofnunar Kína (e. State Oceanic Administration) og rannsóknarmiðstöð Kína í málefnum Norðurslóða (e. Polar Research Institute of China), auk rektorum háskóla í sendiráðinu
17:00–19:00 – Tónleikar og hlaðborðsmóttaka í sendiráðinu
Fimmtudagur 26. mars: Dagskrá er auð
Föstudagur 27. mars:
11:55 –Brottför til Amsterdam
Í dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, frá 17. mars 2015, er dagskráin eftirfarandi:
Laugardagur 21. mars:
09:55 – Móttaka sendinefndar í vinnuheimsókn til Kína. Móttakendur eru Hong Ning, aðstoðardeildarstjóri (e. Deputy Division Chief) og Jan Lian, verkefnastjóri hjá alþjóðasviði menningarmálaráðuneytis Kína
Í sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis eru:
1) Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
2) Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri
3) Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála
4) Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála
5) Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
6) Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
7) Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
8) Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
9) Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
Á vegum sendiráðs Íslands í Peking eru:
1) Stefán Skjaldarson, sendiherra
2) Ragnar Baldursson, sendiráðunautur
3) Zhang Lin, túlkur
4) Sigurrós Xing Yingying
Í hópi fulltrúa fyrirtækja eru:
Fyrir hönd fyrirtækisins Arctic Green Energy (fimm fulltrúar, en þar af er gert ráð fyrir að tveir þeirra séu þegar á staðnum):
1) Haukur Harðarson
2) Guðmundur Ólafsson
3) Jóhannes Sigurðsson
4) Charlotte Zhao
5) Sveinn Einarsson
Fyrir hönd fyrirtækisins Marel:
1) Árni Oddur Þórðarson
2) Árni Sigurðsson
3) Sigsteinn Grétarsson
11:00 – Ferðast á Kempinsky Hotel í Peking
Síðdegi – Frítími
18:00 – Óformlegur kvöldverður þar sem heimsóknin verður undirbúin, í boði Stefáns Skjaldarsonar, sendiherra Íslands í Kína og Birgit Nyborg í sendiherrabústaðnum
Sunnudagur 22. mars:
8:00 – Morgunverður
9:00 – Brottför til Forboðnu borgarinnar
9:30–11:30 – Heimsókn til Forboðnu borgarinnar.
12:00 – Óformlegur hádegisverður, staðsetning óákveðin.
13:30 – Brottför til Xiongxian-hrepps (e. prefecture), undirhrepps Baoding
15:30 – Koma til Xiongxian-hrepps og óformlegur hádegisverður
15:30–16:30 – Brottför til íslensk-kínversku jarðhitamiðstöðvarinnar og skoðunarferð
16:30 – Brottför á jarðhitabaðstað í Xiongxioan-hreppi og innritun
18:00 – Koma og innritun
19:00 – Óformlegur kvöldverður í boði hreppsstjórnar Xionxian
Mánudagur 23. mars:
8:30 – Morgunverður
9:00 – Brottför til Baoding
10:00 – Heimsókn í Hebei-háskóla í Baoding
11:30 – Fundur með Ma Yufeng, borgarstjóra Baoding, og hádegisverður í kjölfarið
14:00 – Brottför til Peking
16:00 – Fundur með Wang Hong, forstöðumanns hafmálastofnunar Kína (e. State Oceanic Administration)
18:00 – Kvöldverður í boði dr. Annie Wu í Peking Jockey Club
Þriðjudagur 24. mars:
10:00 – Fundur með Luo Shugang, ráðherra menningarmála í Kína
12:00 – Hádegisverður, staðsetning óákveðin
14:00 – Fundur með Yuan Guiren, ráðherra menntamála í Kína
16:00 – Fundur með Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála. Undirritun viljayfirlýsingar milli ráðuneytanna
Miðvikudagur 25. mars:
10:00 – Brottför til Sinopec
10:30–11:00 – Fundur með Fu Chengyu, stjórnarformanni Sinopec
10:00 – Heimsókn í tónlistarsafn Kína
12:00 – Hádegisverður, staðsetning óákveðin
13:30–14:00 – Fundur með Yang Wei, forstöðumanni náttúruvísindastofnunar Kína. Undirritun samnings á milli Rannís og Náttúruvísindastofnunar Kína
15:00 – Fundur með Liu Peng, forstöðumanns íþróttastofnunar Kína (e. General Administration of Sports)
16:00 – Farið í sendiráðið. Fundir með leiðtogum hafmálastofnunar Kína (e. State Oceanic Administration) og rannsóknarmiðstöð Kína í málefnum Norðurslóða (e. Polar Research Institute of China), auk funda með rektorum háskóla í sendiráðinu
17:00–19:00 – Tónlistaratriði og hlaðborðsmóttaka í sendiráðinu
Fimmtudagur 26. mars:
9:00 – Brottför til Tsinghua-háskóla
10:00–11:00 – Fundur og heimsókn í Tshinghua-háskóla
Síðdegi – Heimsókn á Kínamúrinn (bíður staðfestingar) og verslunarleiðangur.
Kvöld – Frítími
Föstudagur 27. mars:
11:55 – Brottför til Amsterdam
Í dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, frá 18. mars 2015, er dagskráin eftirfarandi:
Laugardagur 21. mars:
09:55 – Móttaka sendinefndar í vinnuheimsókn til Kína. Móttakendur eru Hong Ning, aðstoðardeildarstjóri (e. Deputy Division Chief) og Jan Lian, verkefnastjóri hjá alþjóðasviði menningarmálaráðuneytis Kína.
Í sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis eru:
1) Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
2) Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri
3) Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála
4) Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála
5) Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
6) Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
7) Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
8) Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
9) Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
Á vegum sendiráðs Íslands í Peking eru:
1) Stefán Skjaldarson, sendiherra
2) Ragnar Baldursson, sendiráðunautur
3) Zhang Lin, túlkur
4) Sigurrós Xing Yingying
Í hópi fulltrúa fyrirtækja eru:
Fyrir hönd fyrirtækisins Arctic Green Energy (fimm fulltrúar, en þar af er gert ráð fyrir að tveir þeirra séu þegar á staðnum):
1) Haukur Harðarson
2) Guðmundur Ólafson
3) Jóhannes Sigurðsson
4) Charlotte Zhao
5) Sveinn Einarsson
Fyrir hönd fyrirtækisins Marel:
1) Árni Oddur Þórðarson
2) Árni Sigurðsson
3) Sigsteinn Grétarsson
4) Jóhannes Gunnarsson
11:00 – Ferðast á Kempinsky Hotel í Peking
Síðdegi – Frítími
18:00 – Óformlegur kvöldverður þar sem heimsóknin verður undirbúin, í boði Stefáns Skjaldarsonar, sendiherra Íslands í Kína og Birgit Nyborg í sendiherrabústaðnum.
Sunnudagur 22. mars:
8:00 – Morgunverður
9:00 – Brottför til Forboðnu borgarinnar
9:30–11:30 – Heimsókn til Forboðnu borgarinnar.
12:00 – Óformlegur hádegisverður
13:30 – Brottför til Xiongxian hrepps (e. prefecture), undirhrepps Baoding
15:30 – Koma til Xiongxian-hrepps og óformlegur hádegisverður
15:30–16:30 – Brottför til íslensk-kínversku jarðhitamiðstöðvarinnar og skoðunarferð
16:30 – Brottför á jarðhitabaðstað í Xiongxioan-hreppi og innritun
18:00 – Koma og innritun
19:00 – Óformlegur hádegisverður í boði hreppsstjórnar Xionxian
Mánudagur 23. mars:
8:30 – Morgunverður
9:00 – Brottför til Baoding
10:00 – Heimsókn í Hebei-háskóla í Baoding
11:30 – Fundur með Ma Yufeng, borgarstjóra Baoding, og hádegisverður í kjölfarið
14:00 – Brottför til Peking
18:30 – Kvöldverður í boði dr. Annie Wu í Peking Jockey Club
Þriðjudagur 24. mars:
9:00 – Fundur með Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála. Undirritun viljayfirlýsingar milli ráðuneyta.
10:00 – Fundur með Luo Shugang, ráðherra menningarmála í Kína
12:00 – Hádegisverður, staðsetning óákveðin
14:30 – Fundur með aðstoðarráðherra menntamála (bíður staðfestingar)
Kvöld
Kvöldverður, staðsetning óákveðin
Miðvikudagur 25. mars:
10:00 – Brottför til Sinopec
10:30–11:00 – Fundur með Fu Chengyu, stjórnarformanni Sinopec
10:00 – Heimsókn í tónlistarsafn Kína (e. China Conservatory of Music)
12:00 – Hádegisverður, staðsetning óákveðin
13:00–14:00 – Fundur með Yang Wei, forstöðumanni náttúruvísindastofnunar Kína. Undirritun samnings á milli Rannís og náttúruvísindastofnunar Kína
15:00 – Fundur með Liu Peng, forstöðumanns íþróttastofnunar Kína (e. General Administration of Sports)
16:00 – Farið í sendiráðið. Fundir með leiðtogum hafmálastofnunar Kína (e. State Oceanic Administration) og rannsóknarmiðstöð Kína í málefnum Norðurslóða (e. Polar Research Institute of China), auk rektorum háskóla í sendiráðinu
17:00–19:00 – Tónlistaratriði og hlaðborðsmóttaka í sendiráðinu
Fimmtudagur 26. mars:
9:00 – Brottför til Tsinghua-háskóla
10:00–11:00 – Fundur og heimsókn í Tshinghua-háskóla
13:00 – Hádegisverður á þorpsveitingastaðnum nærri Kínamúrnum
Síðdegi – Heimsókn á Mutianyu hluta Kínamúrsins í Huiou-héraði og verslunarleiðangur.
Kvöld – Frítími
Föstudagur 27. mars:
11:55 – Brottför til Amsterdam
Í dagskrárdrögum frá sendiráði Íslands í Peking, frá 20. mars 2015, sem jafnframt eru seinustu dagskrárdrög, er dagskráin eftirfarandi:
Laugardagur 21. mars:
09:55 – Móttaka sendinefndar í vinnuheimsókn til Kína. Móttakendur eru Hong Ning, aðstoðardeildarstjóri (e. Deputy Division Chief) og Jan Lian, verkefnastjóri hjá alþjóðasviði menningarmálaráðuneytis Kína.
Í sendinefnd mennta- og menningarmálaráðuneytis eru:
1) Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
2) Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri
3) Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála
4) Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála
5) Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
6) Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
7) Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
8) Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
Á vegum sendiráðs Íslands í Peking eru:
1) Stefán Skjaldarson, sendiherra
2) Ragnar Baldursson, sendiráðunautur
3) Zhang Lin, túlkur
4) Sigurrós Xing Yingying
Í hópi fulltrúa fyrirtækja eru:
Fyrir hönd fyrirtækisins Arctic Green Energy (fimm fulltrúar, en þar af er gert ráð fyrir að tveir þeirra séu þegar á staðnum):
1) Haukur Harðarson
2) Guðmundur Ólafson
3) Jóhannes Sigurðsson
4) Charlotte Zhao
5) Sveinn Einarsson
Fyrir hönd fyrirtækisins Marel:
1) Árni Oddur Þórðarson
2) Árni Sigurðsson
3) Sigsteinn Grétarsson
4) Jóhannes Gunnarsson
11:00 – Ferðast á Kempinsky Hotel í Peking
Síðdegi – Frítími
17:45 – Brottför í sendiráðsbústaðinn
18:00 – Óformlegur kvöldverður þar sem heimsóknin verður undirbúin, í boði Stefáns Skjaldarsonar, sendiherra Íslands í Kína
Sunnudagur 22. mars:
8:00 – Morgunverður
9:00 – Brottför til Forboðnu borgarinnar
10:00–11:30 – Heimsókn til Forboðnu borgarinnar
11:30 – Brottför á No. 13 Compound, Nafu Hutong, vegna hádegisverðar
12:00 – Óformlegur hádegisverður
13:30 – Brottför til Xiongxian-hrepps (e. prefecture), undirhrepps Baoding
16:00 – Koma til Xiongxian-hrepps og heimsókn í kínversk-íslensku jarðhitamiðstöðina. Skoðunarferð
17:00 – Brottför til Xiongxian Mu Mian Hua-hótelsins
17:30 – Koma og innritun á Mu Mian Hua-hótelið. Aðgangur að heitum laugum
18:30 – Kvöldverður í boði hreppsstjórnar Xiongxian héraðs á Xiongxian Mu Mian Hua-hótelinu
Mánudagur 23. mars:
09:55 – Koma Kristínar Ingólfsdóttur, rektors við Háskóla Íslands
8:00 – Morgunverður
8:30 – Brottför til Baoding
9:30 – Koma til Hebei-háskóla í Baoding og heimsókn – ný háskólalóð
11:00 – Brottför frá Hebei-háskóla
11:30 – Fundur með Ma Yufeng, borgarstjóra Baoding, og hádegisverður í kjölfarið
13:00 – Hádegisverður klárast, brottför í bústað héraðsstjóra Zhili-héraðs
13:30–14:10 – Heimsókn í bústað héraðsstjóra Zhili héraðs
14:10 – Brottför til Peking og aftur á hótelið – frítími
16:30 – Koma á hótelið
17:45 – Brottför til Peking Jockey Club
18:30 – Kvöldverður í boði dr. Annie Wu í Peking Jockey Club
Þriðjudagur 24. mars:
07:50 – Brottför í ráðuneyti vísinda- og tæknimála
9:00 – Fundur með Wan Gang, ráðherra vísinda- og tæknimála. Undirritun viljayfirlýsingar milli ráðuneyta
9:40 – Brottför í ráðuneyti menningarmála
10:00 – Fundur með Luo Shugang, ráðherra menningarmála í Kína
11:00 – Brottför til Qianmen
11:30 – Koma og hádegisverður
14:00 – Brottför frá hótelinu til ráðuneytis menntamála
14:30 – Fundur með Hao Ping, aðstoðarráðherra menntamála
15:30–kvöld – Afslöppun og frítími
Miðvikudagur 25. mars
10:00 – Brottför til Sinopec
10:30–11:00 – Fundur með Fu Chengyu, stjórnarformanni Sinopec
10:00 – Heimsókn í tónlistarsafn Kína (e. China Conservatory of Music)
12:00 – Brottför frá hóteli af hálfu annarra meðlima sendinefndar í náttúruvísindastofnun Kína
13:00–14:00 – Fundur með Yang Wei, forstöðumanni náttúruvísindastofnunar Kína. Undirritun samnings á milli Rannís og náttúruvísindastofnunar Kína
15:00 – Fundur með Liu Peng, forstöðumanns íþróttastofnunar Kína (e. General Administration of Sports)
16:00 – Farið í sendiráðið. Fundir með leiðtogum hafmálastofnunar Kína (e. State Oceanic Administration) og rannsóknarmiðstöð Kína í málefnum Norðurslóða (e. Polar Research Institute of China), auk rektorum háskóla í sendiráðinu.
17:00–19:00 – Tónlistaratriði og hlaðborðsmóttaka í sendiráðinu
Fimmtudagur 26. mars
09:00 – Brottför í Tsinghua háskóla
10:00–11:00 – Fundur og heimsókn í Tsinghua-háskóla
11:00 – Brottför að Mutianyu-hluta Kínamúrsins
12:30 eða 13:00 – Hádegisverður á þorpsveitingastaðnum nærri Kínamúrnum
Síðdegi – Heimsókn á Mutianyu-hluta Kínamúrsins í Huiou-héraði og verslunarleiðangur.
Kvöld – Afslöppun
Föstudagur 27. mars:
11:55 – Brottför til Amsterdam