Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 485 — 289. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur
um útgjöld vegna sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstarfa.
Hversu miklu fé hefur verið varið til kaupa á sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörfum fyrir ráðuneytið frá upphafi árs 2014? Hverjir hafa fengið greiðslur af þessum ástæðum og fyrir hvaða verkefni?
Tilfallinn kostnaður vegna kaupa eða milligöngu ráðuneytisins um kaup á sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörfum nam 109.8557.221 kr. á árinu 2014 og 128.051.929 kr. á árinu 2015, fram til loka októbermánaðar. Eftirtaldir aðilar unnu tilgreind verkefni á tímabilinu:
| Nafn | Skýring |
| Admon ehf. | a) Ráðgjöf og vinna vegna rafrænna skilríkja b) Ráðgjöf vegna rafrænna reikninga |
| ADVEL lögmenn slf. | a) Ráðgjöf vegna lagaumhverfis ríkisstofnana b) Ráðgjöf vegna dómsmáls vegna kjarasamninga |
| Analytica ehf. | a) Ráðgjöf vegna lánaumsýslu ríkissjóðs b) Ráðgjöf vegna lífeyrismála |
| Anne Cecilia Benassi | Þýðingar |
| Attentus – Mannauður og ráðgjöf ehf. | Innri starfsemi, innleiðing jafnlaunastaðals |
| Axel Hall | Ráðgjöf vegna lagabreytinga, lög um opinber fjármál |
| Ágústa Þorbergsdóttir | Þýðingar |
| Áhættustýring ehf. | Ráðgjöf vegna lífeyrismála |
| Björn Matthíasson | Þýðingar |
| Brian Patrick Fitzgibbon | Þýðingar |
| Burson-Marsteller | Ráðgjöf og kynningarþjónusta á alþjóðlegum vettvangi |
| Calco ehf. | Vegna uppgjörs föllnu bankanna |
| Capacent ehf. | a) Greining upplýsingakerfa og nytjaleyfa b) Innri starfsemi, starfsmanna- og ráðningarþjónusta c) Ráðgjöf vegna eignamála ríkissjóðs d) Ráðgjöf vegna mannauðsmála ríkisins e) Ráðgjöf vegna opinberra innkaupa |
| Dóra Guðmundsdóttir | Vegna málflutnings fyrir EFTA-dómstólnum |
| Expectus ehf. | Ráðgjöf vegna lagabreytinga, lög um póstþjónustu |
| Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands | Mat á erlendum áhrifum bankahrunsins |
| Fylki ráðgjöf ehf. | Vinna fyrir gerðardóm BHM og Fíh |
| G&T ehf. | a) Ráðgjöf vegna fjárhagslegra samskipta við sveitarfélög b) Ráðgjöf vegna lagabreytinga, lög um Seðlabanka Íslands |
| Grafík – Hönnun og framleiðsla ehf. | Vinna fyrir samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur |
| Grétar Guðmundsson | Vinna vegna útgáfu kjarasamninga |
| GSP samskipti ehf. | Ráðgjöf og vinna vegna rafrænna skilríkja |
| Háskóli Íslands | Vegna eflingar nýsköpunar í opinberum rekstri |
| ICEPRO, nefnd um rafræn viðskipti | Skýrsla um rafræn samskipti, landsumgjörð og samvirkni |
| Ímyndunarafl ehf. | Hönnun sniðmáta |
| J&L ehf. | Vinna vegna kynningar á fjárlagafrumvarpi |
| Jóhannes Bjarni Sigtryggsson | Vinna vegna kynningar á fjárlagafrumvarpi |
| Jón Skaptason ehf. | Þýðingar |
| JS lögmannsstofa ehf. | Vegna uppgjörs föllnu bankanna |
| Juris slf. | a) Vegna málflutnings fyrir EFTA-dómstólnum b) Vegna þjóðlendumála |
| KPMG ehf. | a) Álitsgerð vegna auðlindamála b) Ráðgjöf vegna laga- og reglugerðarbreytinga, lög um virðisaukaskatt |
| Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf. | Ráðgjöf vegna laga- og reglugerðarbreytinga, lög um virðisaukaskatt |
| Landslög slf. | Álitsgerð vegna auðlindamála Ráðgjöf vegna eignamála ríkissjóðs Ráðgjöf vegna rafrænna skilríkja Vegna málflutnings fyrir EFTA-dómstólnum Vegna uppgjörs föllnu bankanna Vegna þjóðlendumála |
| LEX ehf. | Vegna rafrænna skilríkja Vinna fyrir endurkröfunefnd |
| Lögmenn Lækjargötu ehf. | Álitsgerð vegna auðlindamála |
| Nordebt slf. | Vinna við dómsmál vegna kjarasamninga |
| Oddur Sigurður Jakobsson | Vinna við dómsmál vegna kjarasamninga |
| Opis ráðgjöf ehf | Ráðgjöf vegna lagabreytinga, lög um Seðlabanka Íslands |
| Páll Hermannsson | Þýðingar |
| Ráðum ehf. | Innri starfsemi, starfsmanna- og ráðningarþjónusta |
| Ríkiskaup | Ráðgjöf vegna útboðsmála |
| Scriptorium ehf. | Þýðingar |
| Snævarr slf. | a) Ráðgjöf vegna lífeyrismála b) Vinna fyrir samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur |
| Staðarhóll ráðgjöf slf. | Ráðgjöf vegna eignamála ríkissjóðs |
| Strategía ehf. | Ráðgjöf vegna innri starfsemi |
| STRÁ, Starfsráðningar ehf. | Innri starfsemi, starfsmanna- og ráðningarþjónusta |
| Taurus slf. | a) Ráðgjöf vegna lífeyrismála b) Ráðgjöf vegna fjárhagslegra samskipta ríkissjóðs og Seðlabanka Íslands |
| Tectonic Invest ehf. | Ráðgjöf og vinna vegna rafrænna skilríkja |
| Tryggingastærðfræðistofa BG ehf. | Ráðgjöf vegna jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða |
| VERT ehf. | Ráðgjöf og vinna vegna rafrænna skilríkja |
| VSI öryggishönnun og ráðgjöf ehf. | Ráðgjöf vegna öryggismála |
| Vöxtur – Mannauðsráðgjöf ehf. | Ráðgjöf vegna mannauðsmála ríkisins |
| Þráinn Eggertsson | Ráðgjöf vegna lagabreytinga, lög um Seðlabanka Íslands |
| Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytis | Þýðingar |
Á tímabilinu hefur ráðuneytið einnig greitt fyrir eða haft milligöngu um kaup á sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarþjónustu vegna niðurfærslu höfuðstóls verðtryggðra húsnæðislána og vegna framkvæmdahóps um losun gjaldeyrishafta. Um afmörkuð verkefni er að ræða sem fé var veitt til í fjárlögum. Rekstri verkefnanna er ekki að fullu lokið og birting yfirlits nú gefur ekki tæmandi mynd af stöðu mála. Þegar verkefnunum er lokið mun ráðuneytið birta kostnaðaryfirlit á heimasíðu sinni.