Ferill 271. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 557  —  271. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur
um húsaleigukostnað framhaldsskóla.


     1.      Hver eru framlög ríkisins á hvern framhaldsskólanema vegna húsaleigu Verslunarskóla Íslands, Menntaskólans í Borgarnesi og Keilis?
    Framlög ríkisins á hvern framhaldsskólanema vegna húsaleigu Verslunarskóla Íslands er 131.600 kr. og Menntaskólans í Borgarnesi er 276.300 kr., sem er samkvæmt samningi og endurspeglast af þeirri upphæð sem skólinn greiðir í leigu.
    Keilir fær ekki sérstakt framlag vegna húsaleigu eins og gildir um framhaldsskóla því samkvæmt ársreikningi skólans greiðir hann enga leigu fyrir not af húsnæðinu sem hann er í, en framlög til framhaldsskóla til greiðslu á húsaleigu taka mið af gildandi samningum um húsaleigu í hverju tilviki. Samið er um framlag til Keilis með hliðsjón af reiknilíkani framhaldsskóla og miðast við að nemendur stundi viðurkennt nám á framhaldsskólastigi. Í samningi mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Keilis frá 10. september 2014 er miðað við framlag á hvern ársnemanda á námsbraut fyrir einka- og styrktarþjálfara sé 737.500 kr. Samkvæmt skólasamningi er gert ráð fyrir að greitt sé með 60 ársnemendum.

     2.      Hversu margir framhaldsskólanemar stunda nám við hvern þessara skóla?
    Við Verslunarskóla Íslands stunda 1.347 ársnemendur nám. Við Menntaskólann í Borgarnesi stunda 132 ársnemendur nám. Árið 2014 stunduðu 70 ársnemendur nám í einkaþjálfun, sem er viðurkennt nám á framhaldsskólastigi, við Íþróttaakademíu Keilis.