Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 597 — 416. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við afturvirka hækkun lífeyris almannatrygginga og launahækkun ríkisstarfsmanna.
Frá Helga Hjörvar.
1. Hver væri áætlaður kostnaður ríkissjóðs á yfirstandandi ári við að hækka lífeyri almannatrygginga um 10,9% afturvirkt frá 1. maí 2015?
2. Hver er áætlaður kostnaður ríkissjóðs á yfirstandandi ári vegna launahækkana ríkisstarfsmanna á árinu, þ.m.t. vegna hækkana samkvæmt úrskurði kjararáðs frá 17. nóvember sl.?
Skriflegt svar óskast.