Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 673 — 377. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur um sundurliðaðan kostnað við sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörf.
Hvernig sundurliðast greiðslur til þeirra sem tilgreindir eru í svari á þingskjali 443? Óskað er eftir að fram komi upphæð sem greidd var hverjum aðila, upphæð virðisaukaskatts og tilefni greiðslu.
Í svari á þingskjali 443 var heildarupphæð kostnaðar tilgreind án virðisaukaskatts. Innheimtur virðisaukaskattur er jafnan, og í flestum tilvikum, endurgreiddur, sbr. ákvæði í III. kafla reglugerðar nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila. Þar segir að endurgreiða skuli sveitarfélögum og ríkisstofnunum virðisaukaskatt sem þau greiða við kaup á tilteknum aðföngum, þar á meðal sérfræðiþjónustu. Reglurnar miða að því að virðisaukaskattur hafi ekki áhrif á val þeirra sem stunda starfsemi sem fellur utan skattskyldusviðs virðisaukaskatts um það hvort þeir kaupa þjónustu eða inna hana sjálfir af hendi. Ákvæðum laganna og reglugerðanna er þannig ætlað að tryggja að reglur um virðisaukaskatt leiði ekki til röskunar á samkeppni á markaði. Til að gæta samræmis við svar á þingskjali 443 eru fjárhæðir í meðfylgjandi yfirliti án virðisaukaskatts, enda hann endurgreiddur í tilvikum ráðuneyta, sbr. framangreint.
Sundurliðun tilfallins kostnaðar til þeirra sem tilgreindir eru í svari á þingskjali 443 er eftirfarandi:
| Þjónustuaðili | Verkefni | Upphæð, kr. |
| Aagot Vigdís Óskarsdóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 1.022.000 |
| Aðalheiður Jóhannsdóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 180.000 |
| Analytica ehf. | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 875.058 |
| Arnaldur Hjartarson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 252.000 |
| Arndís Ósk Jónsdóttir | Ráðgjöf vegna innri starfsemi | 280.000 |
| Árnasynir slf. | Vinna við almannatengsla og markaðsráðgjöf | 4.300.921 |
| Ásgeir Jónsson | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 425.000 |
| Björg Thorarensen | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 280.000 |
| Capacent ehf. | Ráðgjöf vegna breytinga á skipulagi forsætisráðuneytis | 485.000 |
| Capacent ehf. | Skýrsla með samanburði ráðuneyta, sérgreining | 126.000 |
| Capacent ehf. | Verkefni vegna útgáfu lagasetningu | 262.225 |
| Capacent ehf. | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 288.000 |
| Capacent ehf. | Vinna fyrir nefnd um leiðir til að sporna við sjálfvirkum verðlagshækkunum | 288.000 |
| DECIDEACT | Vinna vegna OECD-ráðstefnu 18.–19. júní 2014 | 744.135 |
| Dóra Guðmundsdóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 267.500 |
| Efla hf. | Vinna við gerð eigendastefnu vegna þjóðlendna | 342.916 |
| Einar Hugi Bjarnason | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 582.000 |
| Elín Ósk Helgadóttir | Verkefni fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál | 93.750 |
| Framlag ehf | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta | 6.324.000 |
| Fúnksjón slf. | Vinna við sameiningu allra vefja ráðuneyta í einn vef | 980.400 |
| G 47 ehf. | Ráðgjöf á sviði upplýsingamála | 8.960.000 |
| Gagarín ehf. | Sérfræðingur á Northen Future Forum 2014 | 179.856 |
| Guðmundur Oddur Magnússon | Álitsgerð um liti íslenskra fánans | 25.000 |
| Guðný Kristín Finnsdóttir | Mat á fýsileika að færa verkefni frá ráðuneytum til sýslumanna | 432.000 |
| Gunnar Narfi Gunnarsson | Verkefni vegna innleiðingar á EES-gerðum á sviði hagsýslugerðar | 412.750 |
| Gunnar Narfi Gunnarsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 107.250 |
| Gunnar Páll Baldvinsson | Verkefni fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál | 2.358.750 |
| Gunnar Páll Baldvinsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 1.987.500 |
| Haukur Arnþórsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 1.624.997 |
| Háskóli Íslands | Vinna sérfræðings á sviði menningararfs | 211.500 |
| Háskólinn á Akureyri | Vinna við könnun á svæðisbundnum og þjóðhagslegum áhrifum af beinu millilandaflugi til Akureyrar eða Egilsstaða | 800.500 |
| Hrefna Friðriksdóttir | Vinna fyrir nefnd sem kannar starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn | 3.553.000 |
| Iða Brá Benediktsdóttir | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 353.500 |
| Karl Axelsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 756.000 |
| KPMG ehf. | Vinna við sameiningu allra vefja ráðuneyta í einn vef | 2.000.000 |
| Kristján Andri Stefánsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 252.000 |
| Kristrún Mjöll Frostadóttir | Vinna fyrir starfshóp um brotaforðakerfi | 2.600.000 |
| Kvant ehf. | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 425.000 |
| Kver ehf. | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 1.020.000 |
| Landform ehf | Vinna vegna þjóðlendumála | 3.704.908 |
| LEX ehf. | Álitsgerð vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar | 1.433.102 |
| LEX ehf. | Ráðgjöf vegna lífeyrismála | 480.000 |
| LEX ehf. | Vinna fyrir nefnd um eftirlitstofnanir ríkisins | 1.312.500 |
| Lixia slf. | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 1.412.250 |
| Logi Kjartansson | Vinna fyrir nefnd um eftirlitstofnanir ríkisins | 100.000 |
| Lögbjörg ehf | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 1.667.500 |
| Lögmannsþjónusta Ein | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 576.000 |
| Lögmenn Lækjargötu ehf. | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta | 1.955.000 |
| Lögvernd ehf. | Verkefni vegna vinnu við einföldun regluverks | 203.375 |
| Lögvernd ehf. | Vinna fyrir nefnd um eftirlitstofnanir ríkisins | 2.537.500 |
| Marías Halldór Gestsson | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta | 999.920 |
| Maskína-rannsóknir ehf. | Vinna fyrir verkefnahóp um sameiginlega stoðþjónustu | 450.000 |
| Meltún ehf. | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta | 9.138.410 |
| Nína Guðríður Sigurðardóttir | Ráðgjöf vegna lífeyrismála | 434.000 |
| Oddur Þorri Viðarsson | Verkefni fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál | 780.000 |
| Ólafur Þórður Harðarson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 434.000 |
| Ragnhildur Helgadóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 392.000 |
| Ríkiskaup | Ráðgjöf vegna útboðsmála | 619.994 |
| Seapool ehf. | Vinna fyrir sérfræðingahóp um höfuðstólslækkun húsnæðismála | 3.000.000 |
| Skúli Magnússon | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 668.000 |
| Staðarhóll ráðgjöf slf. | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd | 630.000 |
| Stafnasel slf. | Verkefni vegna verðtryggingarmála | 6.749.000 |
| Steindór Dan Jensen | Verkefni vegna vinnu við einföldun regluverks | 392.000 |
| Steindór Dan Jensen | Vinna fyrir ráðgjafanefnd um opinberar eftirlitsreglur | 724.500 |
| Thales slf. | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta | 765.000 |
| Valdimar Ármann | Verkefni vegna verðtryggingamála | 1.127.000 |