Ferill 379. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 712 — 379. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur um
sundurliðaðan kostnað við sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörf.
Hvernig sundurliðast greiðslur til þeirra sem tilgreindir eru í svari á þingskjali 486? Óskað er eftir að fram komi upphæð sem greidd var hverjum aðila, upphæð virðisaukaskatts og tilefni greiðslu.
Tilfallinn kostnaður vegna kaupa eða milligöngu ráðuneytisins um kaup á sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörfum frá ársbyrjun 2014 nam 58.090.315 kr., sbr. meðfylgjandi yfirlit yfir þjónustuaðila og verkefni sem unnin voru.
Innheimtur virðisaukaskattur var í flestum tilvikum endurgreiddur, sbr. ákvæði í III. kafla reglugerðar nr. 248/1990 um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila. Þar segir að endurgreiða skuli sveitarfélögum og ríkisstofnunum virðisaukaskatt sem þau greiða við kaup á tilteknum aðföngum, þar á meðal sérfræðiþjónustu. Reglurnar miða að því að virðisaukaskattur hafi ekki áhrif á val þeirra, sem stunda starfsemi er fellur utan skattskyldusviðs virðisaukaskatts, um það hvort þeir kaupa að þjónustu eða inna hana sjálfir af hendi. Ákvæðum laga og reglugerða í þessum efnum er þannig ætlað að tryggja að reglur um virðisaukaskatt leiði ekki til röskunar á samkeppni á markaði.
| Argus ehf. | 2.394.300 |
| Fjölmiðlaráðgjöf | 2.394.300 |
| Ása Björk Stefánsdóttir | 190.000 |
| Ráðgjöf vegna menntunar lögreglu | 190.000 |
| Ásrún Rudolfsdóttir | 580.000 |
| Vinna vegna réttaröryggisáætlunar | 580.000 |
| Capacent ehf. | 153.850 |
| Ráðgjöf vegna breytinga á sýslumannsembættum | 153.850 |
| EE sjálfskiptingar og ráðgjöf ehf. | 351.000 |
| Ráðgjöf vegna neytendamála | 351.000 |
| Efla hf. | 392.933 |
| Verkfræðiþjónusta, sýnatökur í ráðuneytinu | 392.933 |
| Expectus ehf. | 800.000 |
| Vinnustofa við innleiðingu á stefnu | 800.000 |
| Framkvæmdasýsla ríkisins | 33.000 |
| Móttökumiðstöð | 33.000 |
| G&T ehf. | 440.505 |
| Ráðgjafavinna við breytingu á lögum um vatnsveitu sveitarfélaga | 440.505 |
| GI rannsóknir ehf. | 208.125 |
| Gallupvagn, neytendamál | 208.125 |
| Guðný Kristín Finnsdóttir | 432.000 |
| Yfirfærsla verkefna frá ráðuneytum til sýslumanna | 432.000 |
| Gunnar Páll Baldvinsson | 405.000 |
| Lögfræðiaðstoð við stofnun millidómstigs | 405.000 |
| Gunnlaugur Geirsson | 42.000 |
| Vinnsla við lagafrumvarp, evrópska handtökuskipunin | 42.000 |
| Hafsteinn Þór Hauksson | 212.540 |
| Ritun á minnisblaði vegna álits umboðmanns Alþingis | 212.540 |
| Hagvangur ehf. | 1.080.780 |
| Fyrirlestur um orkustjórnun | 60.000 |
| Starfsmannaráðgjöf vegna forstjóra Samgöngustofu | 1.020.780 |
| Háskóli Íslands | 3.267.000 |
| Greiðsla vegna skýrslu um staðsetningu flugvallar | 3.000.000 |
| Þrjár spurningar í panelvagn í júní 2015 | 267.000 |
| Hrefna Friðriksdóttir | 318.750 |
| Lögfræðiaðstoð vegna nýrra ættleiðingarlaga | 318.750 |
| IBT á Íslandi ehf. | 110.000 |
| Áhrifaríkar kynningar, starfsmannamál | 110.000 |
| Intellecta ehf | 3.428.840 |
| Ráðgjöf vegna vinnu við löggæsluáætlun | 2.000.000 |
| Sérfræðiþjónusta vegna ráðninga í embætti sýslumanna og lögreglustjóra | 1.428.840 |
| Íris Björg Kristjánsdóttir | 6.839.948 |
| Ráðgjafaþjónusta vegna endurskoðunar á lögum um útlendinga | 6.839.948 |
| Íslensk framleiðsla ehf. | 371.000 |
| Fjölmiðlaráðgjöf | 371.000 |
| Jóhann Guðnason | 29.403 |
| Þýðing yfir á þýsku vegna endurupptökunefndar | 29.403 |
| JP Lögmenn ehf. | 620.000 |
| Réttarstaða Reykjavíkurflugvallar | 620.000 |
| JSG ráðgjöf ehf. | 40.500 |
| Ráðgjöf fyrir skrifstofu yfirstjórnar | 40.500 |
| Juris slf. | 3.329.376 |
| ESS-reglur um eignarrétt fasteigna | 504.000 |
| Lögfræðiþjónusta vegna net- og upplýsingaöryggis | 809.250 |
| Lögfræðikostnaður, úttekt vegna öryggisatriða | 232.751 |
| Lögfræðiþjónusta vegna fasteignakaupa útlendinga | 998.500 |
| Ráðgjöf vegna sameingar stofnana | 560.625 |
| Úttekt öryggisatriða | 224.250 |
| KPMG ehf. | 1.673.020 |
| Áfangareikningur vegna reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga | 1.029.940 |
| Sérfræðiþjónusta | 643.080 |
| Kristján Andri Stefánsson | 840.000 |
| Ráðgjöf vegna máls fyrir mannréttindadómstóli Evrópu | 840.000 |
| Landslög slf. | 1.201.485 |
| Minnisblað vegna úrskurðar Persónuverndar | 110.800 |
| Ráðgjöf vegna póstmála | 1.090.685 |
| LEX ehf. | 1.070.450 |
| Ráðgjöf vegna umfjöllunar DV | 1.070.450 |
| Lögmenn Höfðabakka ehf. | 834.750 |
| Greinargerð til ESA | 834.750 |
| Mannvit hf. | 17.555.030 |
| Athugun á flugvallarkostum á höfuðborgarsvæðinu | 17.555.030 |
| Mið ehf. | 3.207.180 |
| Endurskoðun á skipulagi innanríkisráðuneytis | 3.207.180 |
| Rakel Þráinsdóttir | 200.000 |
| Vinna við skýrslu um jafna búsetu barna | 200.000 |
| Sextán-níundu ehf. | 75.000 |
| Félagshagfræðileg greining á innanlandsflugi | 75.000 |
| Sigurður Tómas Magnússon | 1.449.000 |
| Vinna við réttaröryggisáætlun | 1.449.000 |
| Sigurður Þórðarson | 1.815.000 |
| Úttekt á framkvæmd á fjárhagslegum samskiptum ríkis og kirkju | 1.815.000 |
| Thales slf. | 1.680.000 |
| Ráðgjöf vegna máls fyrir mannréttindadómstóli Evrópu | 1.680.000 |
| VSI öryggishönnun og ráðgjöf ehf. | 418.550 |
| Rýmingaráætlun / Jakob Kristjánsson | 418.550 |
| Samtals | 58.090.315 |