Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 719 — 324. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá
Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um skýrslu um starfsemi og rekstur RÚV.
1. Hver var samanlagður kostnaður við gerð skýrslu nefndar um starfsemi og rekstur RÚV frá 2007 sem var kynnt af hálfu ráðuneytisins 29. október sl.?
Samanlagður kostnaður við gerð skýrslunnar nemur samtals 4.867.650 kr.
2. Hve mikið fékk hver nefndarmaður greitt fyrir vinnu sína og hver ber kostnaðinn?
Ráðuneytið greiddi Svanbirni Thoroddsen 3.600.000 kr. og Eyþóri L. Arnalds 750.000 kr. fyrir störf þeirra í þágu nefndarinnar.
3. Var fengin aðkeypt ráðgjöf og sérfræðivinna við gerð skýrslunnar? Ef svo er, hver var kostnaðurinn, hvaða aðilar fengu greitt fyrir ráðgjöf og sérfræðistörf og hver ber þann kostnað?
Kostnaður umfram þá sérfræðivinnu, sem greidd var til Svanbjörns Thoroddsen og Eyþórs L. Arnalds og getið er um hér á undan, nam samtals 696.000 kr. Kostnaðurinn er greiddur af ráðuneytinu.
4. Hve mikið kostaði kynning skýrslunnar í Safnahúsinu og víðar og hver ber kostnaðinn?
Kostnaður vegna kynningar á niðurstöðum skýrslunnar nemur samtals 97.650 kr. Kostnaðurinn er greiddur af ráðuneytinu.
5. Hvaða aðilar önnuðust fjölmiðlaráðgjöf vegna kynningar á skýrslunni, hvað kostaði ráðgjöfin og hver ber þann kostnað?
KOM almannatengsl annaðist allan undirbúning og framkvæmd fundar í Safnahúsinu 29. október. Kostnaður vegna þessa nemur 97.650 kr. sem ráðuneytið greiðir.