Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 764  —  481. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um starfshóp um fæðingarorlofsmál.

Frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur.


     1.      Hvenær er von á skýrslu starfshóps um framtíðarskipan fæðingarorlofsmála sem skipaður var af ráðherra 5. desember 2014?
     2.      Hversu oft hefur starfshópurinn fundað á starfstíma sínum?
     3.      Hefur starfshópurinn lagt fram áfanganiðurstöður og ef svo er, hvar er þær þá að finna?
     4.      Hver er kostnaður vegna starfshópsins frá skipun hans og hvernig sundurliðast hann?


Skriflegt svar óskast.