Ferill 443. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 823 — 443. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um aldurssamsetningu æðstu stjórnar ráðuneytisins og stofnana þess.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig er aldurssamsetning æðstu stjórnar ráðuneytisins, stofnana þess og fulltrúa í nefndum og ráðum sem heyra undir það?
Eftirfarandi tafla sýnir aldurssamsetningu æðstu stjórnar ráðuneytisins, stjórnenda stofnana þess og aldurssamsetningu aðalmanna í nefndum og ráðum sem heyra undir ráðuneytið.
Töflunni er skipt í fimm aldurstímabil og er viðkomandi fjöldi stjórnenda eða nefndarmanna/ráðsliða skráður þar fyrir aftan. Neðst kemur fram hver meðalaldur allra í viðkomandi hópi er miðað við desember 2015.
| Ráðuneyti | Stofnanir | Nefndir | |
| Yngri en 30 ára | 0 | 0 | 29 |
| 30–39 ára | 0 | 2 | 107 |
| 40–49 ára | 1 | 6 | 306 |
| 50–59 ára | 4 | 25 | 337 |
| 60 ára og eldri | 1 | 14 | 232 |
| Fjöldi samtals | 6 | 47 | 1.011 |
| Meðalaldur | 54,2 | 56,1 | 51,1 |