Ferill 526. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 831 — 526. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um ónotað
íbúðarhúsnæði í eigu Íbúðalánasjóðs.
Frá Oddnýju G. Harðardóttur.
1. Hefur ráðherra í hyggju að fylgja eftir áætlunum Íbúðalánasjóðs um að koma ónotuðu íbúðarhúsnæði í eigu sjóðsins í notkun um land allt í samstarfi við sveitarfélög?
2. Hver er staðan á tillögum starfshópa sveitarfélaga, t.d. Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss, um að koma slíku húsnæði í notkun?
Skriflegt svar óskast.