Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 867  —  481. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur
um starfshóp um fæðingarorlofsmál.


1.      Hvenær er von á skýrslu starfshóps um framtíðarskipan fæðingarorlofsmála sem skipaður var af ráðherra 5. desember 2014?
    Í skipunarbréfi velferðarráðuneytisins til fulltrúa í starfshóp um mótun tillögu að framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum, dags. 5. desember 2014, er ekki óskað eftir að starfshópurinn skili niðurstöðum sínum til ráðherra innan tiltekins tímafrests. Ráðherra gerir þó ráð fyrir að starfshópurinn ljúki störfum fljótlega.

2.      Hversu oft hefur starfshópurinn fundað á starfstíma sínum?
    Fram til þessa hefur starfshópurinn alls fundað átján sinnum á starfstíma sínum.

3.      Hefur starfshópurinn lagt fram áfanganiðurstöður og ef svo er, hvar er þær þá að finna?
    Starfshópurinn hefur ekki lagt fram áfanganiðurstöður.

4.      Hver er kostnaður vegna starfshópsins frá skipun hans og hvernig sundurliðast hann?
    Í skipunarbréfi velferðarráðuneytisins til fulltrúa í starfshópnum, dags. 5. desember 2014, kemur m.a. fram að ekki sé gert ráð fyrir að greidd verði þóknun af hálfu ráðuneytisins fyrir setu í starfshópnum og greiðir ráðuneytið því ekki þóknun til fulltrúa í starfshópnum. Þetta á þó ekki við hvað varðar formann starfshópsins en hann fær greidda þóknun frá ráðuneytinu fyrir störf sín með hópnum og verður sú þóknun í samræmi við þær þóknanir sem ráðuneytið greiðir almennt til formanna annarra sambærilegra nefnda og starfshópa á vegum ráðuneytisins í þeim tilvikum þegar slíkar greiðslur koma til framkvæmda.
    Ekki er reiknað með að annar kostnaður en sá sem að framan greinir falli til vegna starfa starfshóps um mótun tillögu að framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum.