Ferill 599. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 977 — 599. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um verklega þjálfun sálfræðinga.
Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
1. Hvernig hyggst ráðherra tryggja tólf mánaða verklega þjálfun sem nauðsynleg verður fyrir leyfi landlæknis til að kalla sig sálfræðing og starfa sem slíkur frá 1. júlí 2017, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1130/2012, um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi, og breytingareglugerð nr. 492/2015?
2. Verður gert ráð fyrir sérstökum fjárheimildum í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017 vegna framkvæmdar reglugerðarinnar?
Skriflegt svar óskast.