Ferill 50. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 107 — 50. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um stefnu í almannavarna- og öryggismálum.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hver er staða aðgerða samkvæmt stefnu í almannavarna- og öryggismálum ríkisins 2015–2017, sem almannavarna- og öryggismálaráð samþykkti í júní 2015?
2. Til hvaða aðgerða hefur verið gripið í samræmi við stefnuna og hve miklu fé hefur verið varið til hennar?
3. Hvað líður birtingu skýrslna fyrir árin 2015 og 2016 samkvæmt ákvæðum í stefnunni um að í lok hvers árs skuli lagt mat á stöðu aðgerða og tekin saman skýrsla?
4. Hversu oft hefur almannavarna- og öryggismálaráð verið kallað saman frá samþykkt almannavarna- og öryggismálastefnunnar?
5. Hvernig telur ráðherra að til hafi tekist við að samræma vinnu á grundvelli almannavarna- og öryggismálastefnunnar því starfi sem byggist á þjóðaröryggisstefnu sem samþykkt var í apríl 2016?
Skriflegt svar óskast.