Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 116  —  59. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um sáttameðferð.

Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.

                                  
     1.      Hve oft frá gildistöku laga nr. 61/2012, um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, til loka ársins 2016 áttu sér stað sáttaumleitanir í
                  a.      forsjár-,
                  b.      lögheimilis-,
                  c.      umgengnis- og
                  d.      dagsektarmálum? Hve mörg dómsmál voru höfðuð vegna framangreindra mála á sama tímabili?
     2.      Hvert var á sama tíma hlutfall sáttameðferðarmála sem lauk með sátt, greint á sama hátt og í 1. tölul. fyrirspurnarinnar, og hve mörg vottorð um sáttameðferð voru gefin út á þessu tímabili?
     3.      Hversu oft var vottorð um sáttameðferð gefið út frá ársbyrjun 2013 til ársloka 2016 án þess að tilkvaddir aðilar hefðu mætt til sáttafundar, sbr. 5. mgr. 33 gr. a barnalaga, og hversu hátt hlutfall forsjármála var það?
     4.      Hafa starfsmenn sýslumannsembætta ávallt annast sáttameðferð eða hefur verið leitað til annarra aðila, sbr. 2. mgr. 33 gr. a barnalaga, og þá hversu oft?
     5.      Hefur landinu verið skipt niður í sáttaumdæmi eins og heimilt er skv. 4. gr. reglna um ráðgjöf og sáttameðferð skv. 33. og 33. gr. a barnalaga og hver eru mörk umdæmanna ef svo er?
     6.      Hversu langur tími líður að jafnaði frá því að sáttameðferð hefst uns henni lýkur?
     7.      Hversu oft á tímabilinu 1. janúar 2013 til 1. janúar 2017 hafa sáttafundir farið fram í síma eða með fjarfundabúnaði eða annars konar fjarskiptatækni?
     8.      Hve mörgum sáttameðferðum lauk eftir einn sáttafund á tímabilinu 1. janúar 2013 til 1. janúar 2017 og hversu hátt hlutfall allra sáttameðferða var það?
     9.      Er unnið að samningu reglugerðar sem kæmi í stað bráðabirgðareglna um ráðgjöf og sáttameðferð frá 14. febrúar 2013 og hvenær er hennar að vænta?


Skriflegt svar óskast.