Ferill 12. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 20 — 12. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um aðgerðaáætlun gegn mansali og vinnulag við mansalsmál.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvaða áform eru um framhald aðgerðaáætlunar gegn mansali þegar áætlun fyrir árin 2013–2016 rennur út í lok þessa árs?
2. Hvaða verkferlar eru í gildi varðandi meðferð mansalsmála í dómskerfinu?
3. Hvernig hefur fræðslu starfsmanna lögreglu, ákæruvalds og dómstóla verið háttað um mansalsmál á gildistíma fyrrnefndrar áætlunar og við hvaða embætti hafa gegnt störfum þeir starfsmenn sem fengið hafa fræðslu?
4. Hversu margir starfsmenn lögreglu, ákæruvalds og dómstóla hafa sótt fræðslufundi í tengslum við aðgerðaáætlun gegn mansali? Svar óskast sundurliðað eftir embættum.
5. Hversu miklu fé hefur verið varið til verkefna sem tengjast mansali í samræmi við gildandi aðgerðaáætlun gegn mansali? Svar óskast sundurliðað eftir árum og verkþáttum þar sem m.a. komi fram hve miklu hefur verið varið til fræðslu.
6. Telur ráðherra að kostur sé á nægum úrræðum til að koma þolendum mansals úr þeim aðstæðum, svo sem með því að tryggja þeim möguleika á að framfleyta sér með því að stunda atvinnu meðan mál þeirra eru til meðferðar í réttarkerfinu?
7. Hvernig telur ráðherra að meðferð máls tveggja kvenna sem höfðu stöðu þolenda í meintu mansalsmáli í Vík í Mýrdal hafi samræmst aðgerðaáætlun gegn mansali?
Skriflegt svar óskast.