Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 302 — 218. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um hrefnuveiðar.
Frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur.
1. Hvaða hagsmuni hefur þjóðarbúið af því að leyfa áframhaldandi hrefnuveiðar í Faxaflóa og hafa þeir verið vegnir og metnir gagnvart öðrum hagsmunum, t.d. hagsmunum ferðaþjónustunnar? Ef svo er ekki, mun ráðherra beita sér fyrir því að það verði gert?
2. Hafa verið könnuð áhrif hrefnuveiða í Faxaflóa á hagsmuni ferðaþjónustu suðvestanlands, einkum hvalaskoðunar og annarrar útilífsferðaþjónustu sem tengd er hafi og ströndum? Ef svo er ekki, mun slík könnun fara fram?
3. Hver er afstaða ráðherra til samhljóða samþykktar borgarstjórnar Reykjavíkur frá því í desember 2014 og ályktana Samtaka ferðaþjónustunnar um að allur Faxaflói verði griðarstaður hvala?
4. Hver er afstaða ráðherra til þess að undanfarin ár hefur meðalþyngd veiddra hrefna verið nálægt 4,5 tonnum sem bendir til þess að einkum séu veidd ung dýr sem ekki hafa aukið kyn sitt? Hvaða áhrif er talið að þetta hafi á stofnstærð hrefnu og nýliðun og telur ráðherra að þörf sé sérstakra viðbragða við þessu?
5. Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar á dauðatíma hrefna sem hafa verið skotnar hér við land sl. fimm ár, hvaða aðilar hafa staðið að þeim og hverjar hafa helstu niðurstöður þeirra verið?
Skriflegt svar óskast.