Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 922  —  509. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Einari Brynjólfssyni um samninga ráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélög.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða samningar ráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélögin voru í gildi 1. apríl 2017, hvaða samningar milli þessara aðila runnu út á tímabilinu 1. janúar 2006 til og með 1. apríl 2017 og eftir hvaða samningum var enn greitt 1. apríl 2017 þótt gildistími þeirra væri liðinn? Óskað er eftir stuttri lýsingu á efni hvers samnings fyrir sig.

    Forsætisráðuneytið hefur á því tímabili sem spurt er um gert einn samning viö sveitarfélag. Um er að ræða tímabundinn samning ráðuneytisins við Sveitarfélagið Hornafjörð sem gerður var árið 2005 til tveggja ára um framkvæmd jöklasýningar á Jöklasetrinu á Höfn.
    Forsætisráðuneytið leitaði upplýsinga hjá stofnunum sem heyra undir ráðuneytið um hvort einhverjir samningar hefðu verið gerðir sem féllu undir efni fyrirspurnarinnar og reyndist svo ekki vera.